Hvenær hefst þessi viðburður:
21. september 2013 - 11:00 to 13:00
Nánari staðsetning:
Ganga hefst á horni Aðalstrætis og Túngötu

Laufey Steingrímsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, Guðrún Hallgrímsdóttir matvælaverkfræðingur og Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur leiða gönguferð þar sem matur, saga og menning verða meginefnið. Gangan hefst á horni Aðalstrætis og Túngötu kl. 11 og henni lýkur við gömlu höfnina. Gengið verður um gamla grænmetisgarða, stakkstæði, veitingastaði og verslanir liðins tíma.
Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands halda áfram samstarfi sínu um fræðandi gönguferðir sem hófust á aldarafmæli skólans 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskóla Íslands blandast saman í áhugaverðum gönguferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.