Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Klarínettur og söngur á háskólatónleikum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
17. febrúar 2016 - 12:30 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðarsal
Háskólatónleikar
Chalumeaux-tríóið og Hanna Dóra Sturludóttir, messósópran, flytja verk eftir Pál P. Pálsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Igor Stravinsky, J.S.Bach/H.Birthwistle og nýtt verk eftir Jónas Tómasson (frumflutningur).
 
Chalumeaux-tríóið skipa Ármann Helgason, Kjartan Óskarsson og Sigurður Ingvi Snorrason sem leika allir á ýmis hljóðfæri úr klarínettufjölskyldunni.
 
Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum og allir eru velkomnir.
 
---
 
Nánari upplýsingar um tónskáldið, verkin og flytjendur:

Hjálmar H. Ragnarsson (1952) samdi Mörsug, tríó fyrir þrjár B-klarínettur, árið 1981 að beiðni Musica Nova og var verkið frumflutt það sama ár.

Jónas Tómasson (1946) segir um nýtt verk sitt sem frumflutt verður hér:

Í nóvember 2014 fluttu Hanna Dóra Sturludóttir og Chalumeaux- tríóið Via Crucis /Stabat        Mater sem tengist föstudeginum langa og   fékk ég þá hugmynd að semja verk sem tengdist     jólun­um. Ég valdi Maríuversið Alma Redemptoris Mater - sennilega eftir 11. aldar skáldið    Hermann Contractus (Hermann kroppinbakur?). Ætli ég fari ekki að semja fleiri       Maríusöngva - eitthvað sem tengist boðunardegi Maríu næst - hver veit?

Páll P. Pálsson (1928) samdi Trio trionfante fyrir Chalumeaux-tríóið 2002. Áður hafði hann samið verk fyrir tríóið og söngrödd við ljóð eftir G. Trakl.

Breska tónskáldið og klarínettuleikarinn, Sir Harrison Birthwistle (1934), umritaði 1975 fimm kóralforspil fyrir söngrödd og þrjú klarínettuhljóðfæri eftir Johann Sebastian Bach (1685-1750). Hér heyrum við fjögur þeirra.

Igor Stravinsky(1882-1975) samdi Vögguvísur kattarins árið 1915, þá búsettur í Sviss. Tónsmíðin byggist á þjóðlögum sem finna má í safni rúss­­­neska þjóðlagasafnarans, Pyotr Kireevsky. Verkið var fyrst flutt 1918 og þá með píanóundirleik. Gerðin sem við heyrum hér var frum­flutt á tónleikum sem Arnold Schön­berg stóð fyrir í Vín 6. júní 1919. Oftast eru vögguvísur kattarins sungnar á rússnesku en nú eru þær á þýsku.

Chalumeaux-tríóið var stofnað árið 1990 af klarínettuleikurunum Kjartani Óskars­syni, Óskari Ingólfssyni og Sigurði Ingva Snorrasyni. Á verkefna­skrá tríósins eru verk sem spanna alla sögu klarínettu­hljóðfæranna eða frá um 1730. Tríóið leikur upphafleg verk eftir tónskáld eins og Mozart en jafnframt hafa þeir Kjartan og Sigurður umritað fjölda verka fyrir tríóið. Meðal þessara verka eru fjölmargar aríur úr óperum eftir Mozart og Salieri. Þessi verk hefur tríóið flutt ásamt þremur söngvurum. Þá hafa mörg íslensk tónskáld skrifað verk fyrir tríóið.

Ármann Helgason tók sæti Óskars Ingólfssonar sem lést 2009.

Hanna Dóra Sturludóttir, messósópran, stundaði söngnám hjá Kristni Sigmunds­syni og Snæbjörgu Snæbjarnar við Söngskólann í Reykjavík en hélt svo til framhaldsnáms við Listaháskólann í Berlín. Meðal kennara hennar þar voru Dietrich Fischer-Dieskau og Aribert Reimann og við út­skrift hlaut hún viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur. Hanna Dóra hefur sungið við mörg helstu óperuhús Þýskalands, m.a. Komische Oper og ríkis­óperuna í Berlín. Á meðal þeirra u.þ.b. 40 hlut­verka sem hún hefur túlkað á ferlinum eru Greifynjan í Brúðkaupi Figarós, Cio Cio San í Madame Butterfly, Marie í Wozzek, Miss Jessel í Tökin hert og titil­hlut­verkið í Ariadne á Naxos sem hún söng í Íslensku óperunni 2007. Haustið 2010 söng hún „Miss Donnithorne´s Maggot“ eftir Peter Maxwell­ Davies í ríkis­­­óperunni í Berlín og hlaut mjög góða dóma. Hanna Dóra hefur sungið á tónleikum um allt Þýskaland og víða í Evrópu. Tón­leika­­haldið hefur m.a. borið hana til Katar og Egypta­lands. Undanfarin ár hefur hún tekið þátt í fjöl­­mörgum uppfærslum Novo­flot í Berlín, óperu­smiðju sem sérhæfir sig í frum­­flutningi á nýrri óperu­tónlist, og flutt með þeim verk m.a. í Varsjá og Lúxemborg. Sumarið 2012 var hún í aðalhlutverki í Wagnerin sem hópurinn setti upp í sam­starfi við ríkisóperuna í München. Á Íslandi hefur hún tekið þátt í uppfærslum Íslensku óperunnar, haldið fjölda ljóða­tónleika og sungið Vínartónleika með Sinfóníu­hljóm­sveit Íslands og Salon Islandus. Hanna Dóra hefur þrisvar fengið tilnefn­ingar til Íslensku tón­listar­­verðlaunanna; fyrir flutning sinn á Wesendonck-ljóða­flokknum eftir Richard Wagner með Sinfóníu­hljóm­sveit Íslands vorið 2012, fyrir titil­hlut­verkið í Carmen hjá Íslensku óperunni haustið 2013 og nú síðast fyrir hlut­verk Eboli í Don Carlo en fyrir það hlaut hún Íslensku tón­­listar­­verð­launin sem söngkona ársins 2014.

 

 

 

 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012