
UNICEF á Íslandi og lögfræðisvið Háskólans á Bifröst standa fyrir málþingi um flóttabörn sem koma til Íslands og stöðu þeirra samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
1. Af hverju Barnasáttmáli?
Hjördís Eva Þórðardóttir, réttindafræðslufulltrúi hjá UNICEF á Íslandi, fjallar stuttlega um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og setur hann í samhengi við umræðuefni dagsins.
2. Réttarstaða barna á flótta á Íslandi
Katrín Oddsdóttir, lögmaður á sviði mannréttinda, fer yfir það hvað lög og reglur segja um rétt flóttabarna hér á landi. Jafnframt víkur hún að því hvort framkvæmdin endurspegli ákvæði laga með nægilega góðum hætti.
3.Guðríður Lára Þrastardóttir, héraðsdómslögmaður og talsmaður hælisleitenda hjá Rauða krossi Íslands, fer yfir móttökur og aðstæður flóttabarna sem koma til Íslands í fylgd foreldra og barna sem hingað koma fylgdarlaus. Hún fer einnig yfir notkun íslenskra stjórnvalda á aldursgreiningum á flóttabörnum og aðstæðumun barna í hælismeðferð og þeirra sem hingað koma sem kvótaflóttamenn.
4. Reynsla barna og foreldra sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi: Móttakan og lífið á Íslandi
Helga Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur, kynnir áður óbirtar niðurstöður MA-rannsóknar sinnar í þróunarfræðum. Hún ræddi við börn sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi og foreldra þeirra. Niðurstöðurnar benda m.a. til þess að möguleikar barnanna til að tjá sig um eigin upplifun, líðan og aðstæður séu mjög takmarkaðar.Aðbúnaður, réttindi og móttökur flóttabarna á Íslandi
Fundarstjóri er Þorbjörg Sigríður Gunnlaugssdóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs Háskólans á Bifröst. Fundurinn er öllum opinn og ókeypis er inn.