Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Aldrei fór ég Westur

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
5. febrúar 2016 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Fyrirlestrarsalur
Varnarlið Keflavíkurflugvelli - NATO herstöð

Ísland heiman og heim – útflytjendur - innflytjendur,

er yfirskrift fyrirlestrarraðar MARK á vormisseri 2016 sem hefst föstudaginn 5. febrúar n.k. með erindi Friðriks Þórs Guðmundssonar blaðamanns, Aldrei fór ég Westur.

Það er næsta ógerningur að ímynda sér íslenskt samfélag án erlendra menningaráhrifa því þau eru allt umlykjandi og allstaðar: í formi hugmynda, tækni, viðhorfa, mataræðis, listsköpunar, framkomu, tísku og svo framvegis út í hið óendanlega.

Íslenskt samfélag hefur á tiltölulega stuttum tíma breyst úr því að vera ákaflega einsleitt í menningarlegu tilliti yfir í að skarta menningarlegum margbreytileika á pari við nágrannalöndin, sem endurspeglast í sívaxandi hópi innflytjenda, sem koma víðsvegar að. Nærri 10% landsmanna eru af erlendum uppruna og á Íslandi eru töluð yfir 150 tungumál.

Jafnframt hafa fjölmargir Íslendingar búið erlendis um lengri eða skemmri tíma annað hvort við vinnu eða í námi. Með öðrum orðum þá eru viðvarandi tengsl við aðra menningu, önnur lönd býsna algeng meðal landsmanna.

Sem fyrr segir ber fyrsti fyrirlesturinn yfirskriftina Aldrei fór ég Westur. Í erindinu lýsir Friðrik Þór Guðmundsson blaðamaður - líka þekktur sem Mr. Fridriksson -  tvöföldu lífi sínu; sem Íslendings og sem sonur bandarísks starfsmanns Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Fyrstu árin var lögheimili Friðriks Þórs póstbox í New York. Í erindinu mun Friðrik Þór varpa ljósi á hvernig var að alast upp í Reykjavík öðruvísi en önnur börn; í öðruvísi fötum, að leika með annars konar dót, að borða dularfullt nammi og óþekktan mat, verandi burstaklipptur og horfandi á Kanasjónvarpið. Meirihluti 84 afkomenda föðurafa og -ömmu Friðriks Þórs býr í Bandaríkjunum og Kanada en samskiptin við þau virk – á Facebook og á ensku.

Fyrirlestrarröðin er tvíþætt. Annars vegar munu Íslendingar fjalla um reynslu sína af búsetu í öðrum löndum og/eða sterkum tengslum við aðra menningu og önnur lönd. Hins vegar munu innflytjendur á Íslandi segja frá reynslu sinni af búsetu hér og þeim áskorunum sem þeir hafa þurft að takast á við í nýju landi. Fyrirlestrarnir verða haldnir á tveggja vikna fresti, á föstudögum í hádeginu.

Allir velkomnir


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012