Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Hefur atvinnuóöryggi áhrif á kosningahegðun?

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
5. febrúar 2016 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 101
Agnar Freyr Helgason

Föstudaginn 5. febrúar heldur Agnar Freyr Helgason, doktor í stjórnmálafræði og verkefnastjóri Þjóðmálastofnunar HÍ, fyrirlestur sem ber heitið Hefur atvinnuóöryggi áhrif á kosningahegðun?
Það eru alkunn sannindi að þegar illa árar í efnahagsmálum eigi sitjandi ríkisstjórnir á brattann að sækja í kosningum. Þrátt fyrir það er ennþá óljóst hvaða efnahagsþættir skipti mestu fyrir kjósendur og mat þeirra á sitjandi ríkisstjórn. Í fyrirlestrinum fjallar Agnar um nýlega samanburðarrannsókn sína á áhrifum atvinnuóöryggis á kosningahegðun og skoðar hvort áhrifin velti á því hvort sitjandi ríkisstjórn sé til vinstri eða hægri.

Fyrirlestur Agnars Freys er hluti af fyrirlestraröð Stjórnmálafræðideildar og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands um ávinning og viðfangsefni samanburðarstjórnmála (sjá nánar um fræðigreinina og nýtt MA nám við HÍ hér). Fimm opnir hádegisfyrirlestrar verða haldnir á hverjum föstudegi frá 29. janúar til 4. mars, í Odda 101, í Háskóla Íslands.  

Allir velkomnir.

Nánari upplýsingar hjá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála í síma 525 5454 eða í netfanginu sjofn@hi.is  og  á vefsíðu http://stjornsyslustofnun.hi.is/


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012