Hvenær hefst þessi viðburður:
20. janúar 2016 - 9:00 til 10:30
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafnsins

UNICEF á Íslandi kynnir nýja skýrslu um efnislegan skort meðal barna á Íslandi. Hagstofa Íslands greindi gögnin í skýrslunni með svokallaðri skortgreiningu UNICEF. Með henni eru mótaðar nýjar leiðir til að greina efnislegan skort meðal barna í efnameiri ríkjum heims.
Samhliða útgáfu skýrslunnar opnar UNICEF á Íslandi mælaborð fyrir gagnasafn skýrslunnar sem unnið var með Datamarket.
- Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, kynnir niðurstöður skýrslunnar
- Kolbeinn Stefánsson, sérfræðingur á Hagstofu Íslands lýsir aðferðafræðinni sem notuð var
Þátttakendur í pallborðsumræðum:
- Anni G. Haugen, lektor við félagsráðgjöf við Háskóla Íslands
- Ingibjörg Broddadóttir, sérfræðingur á skrifstofur félagsþjónustu í velferðarráðuneytinu
Fundarstjóri:
- Daði Már Kristófersson, forseti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands