Hvenær hefst þessi viðburður:
27. nóvember 2013 - 13:00 til 17:00
Nánari staðsetning:
Háskólinn í Reykjavík
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Clik here to view.

Háskólinn í Reykjavík heldur málþing í samstarfi við Reykjavíkurborg um framtíð Vatnsmýrarinnar. Tækifærin sem búa í háskólasamfélaginu á sviði menntunar, rannsókna og nýsköpunar verða rædd í samhengi við uppbyggingu í Vatnsmýri. Auk erinda og umræðna verður á staðnum kynning á helstu verkefnum sem eru á döfinni: uppbygging Vísindagarða HÍ, Háskólagarða HR, Hlíðarenda, Skerjafjarðar, Landspítala og samgöngumiðstöðvar.
Meðal þeirra sem flytja erindi á málþinginu er Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, en hún mun fjalla um tækifærin í Vatnsmýrinni á svæði Háskóla Íslands.