
Hvernig verður bók til? Vilborg Davíðsdóttir: Ástin, drekinn og Auður djúpúðga
Stofu 104 á Háskólatorgi föstudaginn 27. nóvember kl. 12–13.
,,Þykjast menn varla dæmi til vita að einn kvenmaður hafi komist í brott úr þvílíkum ófriði með jafnmiklu fé og föruneyti.“ Þannig farast sögumanni Laxdælu orð um ferð Auðar djúpúðgu frá Skotlandi til Íslands í lok níundu aldar. Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur og þjóðfræðingur hefur sent frá sér tvær skáldsögur um ævi landnámskonunnar og vinnur nú að þeirri þriðju og síðustu þar sem hún spinnur þráðinn út frá þessum þekktu orðum, ásamt heimildum um atburði í Skotlandi á sögutímanum.
Vilborg segir gestum frá skrifum sínum um Auði djúpúðgu í máli og myndum og einnig nýjustu bók sinni sem kom út í vor og ber titilinn Ástin, drekinn og dauðinn. Þar fjallar hún um vegferð sína og manns síns með sjúkdómnum sem þau vissu að myndi draga hann til dauða og deilir með lesendum því sem sorgin hefur kennt henni: mikilvægi þess að lifa til fulls, í núinu, í sátt og viðtekt og vanda sig við að elska, lifa og deyja.
Fyrirlestraröðin Hvernig verður bók til? er á vegum námsbrautar í ritlist og Bókmennta- og listfræðastofnunar Háskóla Íslands. Þar hafa margir af ástsælustu höfundum þjóðarinnar rætt um ritverk sín á undanförnum árum.