Hvenær hefst þessi viðburður:
29. október 2015 - 12:20 til 13:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, bókasafn.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Clik here to view.

Fyrirlesari: Ásgeir Bjarnason.
Í erindi sínu mun Ásgeir fjalla um hvernig hitamælar Stjörnu-Odda hafa verið notaðir í lyfjaþróun í ýmsum dýramódelum til að mæla virkni veirusýkinga og bóluefna gegn þeim, m.a. H1N1, H5N1 og inflúensu, og hvernig þessi reynsla varð til þess að fyrirtækið var fengið í alþjóðlegt verkefni þar sem hitastig er mælt í konum til að kanna notkun á hringjum sem seyta "örverudrepandi efni (e. microbicide)" til að verjast HIV veirunni. Þetta er fyrsta verkefnið sem fyrirtækið hefur aðkomu að í mönnum.