Hvenær hefst þessi viðburður:
30. október 2015 - 12:00 til 13:00
Nánari staðsetning:
Salur Þjóðminjasafns Íslands

Fræðsluerindi á vegum Vísindafélags Íslendinga
Nóbelsverðlaun í bókmenntum
Heimildaskáld hlýtur nóbelsverðlaun
Árni Bergmann, rithöfundur kynnir verk handhafa Nóbelsverðlauna í bókmenntum 2015
Ágrip
Í fyrirlestri sínum fjallar Árni Bergmann um hvítrússneska rithöfundinn
Svetlönu Alexijevitsj og stöðu hennar í bókmennntum á rússnesku.
Einkum verða tekin dæmi af bók hennar um konur í sovéska hernum
í heimstyrjöldinni síðari, en einnig fallað um meginþema bóka hennar:
hver var "hinn sovéski maður" og hvað varð um hann eftir fall
Sovétríkjanna.
Fundarstjóri
Margrét Eggertsdóttir, rannsóknarprófessor.
Boðið verður upp á veitingar á undan fræðslufundinum frá kl. 11:30