Hvenær hefst þessi viðburður:
31. október 2015 - 12:00 til 16:00
Staðsetning viðburðar:

Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands stendur fyrir Vísindadegi laugardaginn 31. október.
Dagskráin er fjölbreytt í ár og boðið verður upp á marga skemmtilega og fræðandi viðburði um nýjustu tækni og vísindi fyrir alla fjölskylduna.
Fremstu vísindamenn landins munu meðal annars fara yfir:
Efnafræði alheimsins, ljós og líf, DNA, nýjan jáeindaskanna Landspítalans, hvali og fugla, ofurtölvur, eldfjöll og jökla, Einstein og Holuhraun svo fátt eitt sé nefnt.
Sprengjugengið sýnir efnafræðitilraunir og Vísindasmiðjan eðlisfræðitilraunir
Lið Team Spark verður á staðnum með rafknúinn kappakstursbíl.
Ferðalag um undur sólkerfisins í Stjörnutjaldinu með Sólmyrkva Sævari.
Boðið verður upp á veitingar í tilefni Hrekkjavöku.
Allir velkomnir.