Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Doktorsvörn í Uppeldis- og menntunarfræðideild Menntavísindasviðs: Kristín Norðdahl

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
13. október 2015 - 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðasalur
Háskóli Íslands

Kristín Norðdahl ver doktorsritgerð sína í menntavísindum við Uppeldis- og menntunarfræðideild Menntavísindasviðs Háskóla Íslands:
The outdoor environment in children’s learning
Útiumhverfið í námi barna

Athöfnin fer fram þriðjudaginn 13. október kl. 13.00 í Hátíðasal Háskóla Íslands.
Andmælendur eru dr. Margaret Kernan forstöðumaður  Tilburg International Child Development Initiatives (NGO), Leiden, Hollandi  og dr. Tim Waller, prófessor við Anglia Ruskin Háskólann Bretlandi.

Leiðbeinendur voru dr. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, aðalleiðbeinandi, prófessor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og meðleiðbeinandi dr. Jóhanna Einarsdóttir prófessor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Auk þess sat í doktorsnefndinni dr. Gunnhildur Óskarsdóttir dósent  við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Dr. Ólafur Páll Jónsson, deildarforseti Uppeldis- og menntunarfræðideildar Menntavísindasviðs, stjórnar athöfninni.

Um verkefnið

Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka hlutverk útiumhverfis í námi barna. Í því skyni voru gerðar voru fjórar hlutarannsóknir. Í fyrstu hlutarannsókninni var athugað hvað einkenndi orðræðu um hlutverk útiumhverfis í námi barna í stefnuskjölum yfirvalda, bæði á landsvísu og í einstökum sveitarfélögum. Í annarri hlutarannsókninni voru hugmyndir kennara um hlutverk útiumhverfis athugaðar. Í þriðju hlutarannsókninni voru hugmyndir barna og óskir um hvað þau vildu gera úti athugaðar. Í fjórðu hlutarannsókninni var athugað hvernig kennarar notuðu útiumhverfið í námi barna.

Niðurstöðurnar benda til að stefnumótendur, kennarar og börn meti útiumhverfi mikils sem námsumhverfi. Fjögur meginþemu um hlutverk útiumhverfis í námi barna mátti sjá í öllum hlutarannsóknunum. Útiumhverfið var álitið og notað sem staður til að: (a) ýta undir leik og nám barna, (b) efla líkamlega og andlega vellíðan barna, (c) taka áhættu og finna fyrir öryggi og (d) hafa áhrif á viðhorf barna til umhverfisins. Á óvart kom þögn um útiumhverfi sem námsumhverfi skóla í lögum og reglugerðum svo og áhersla sveitarfélaga á að ýta undir stolt íbúa af umhverfinu. Einnig kom í ljós að umræðan um útiumhverfi tengdist ekki öllum þeim þáttum sem taldir eru mikilvægir í námi barna, svo sem kyngervi þeirra, mismunandi bakgrunni eða ólíkri getu þeirra.

Um doktorsefnið

Kristín Norðdahl (f. 1956) starfar sem lektor við Kennaradeild Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Viðfangsefni hennar í starfi og rannsóknum tengjast aðallega náttúrufræðimenntun, umhverfismennt og menntun til sjálfbærni, sem og útinámi og útikennslu. Kristín hefur Fil. cand. próf í líffræði frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð og meistarapróf í menntunarfræðum frá Háskóla Íslands. Kristín hefur reynslu af kennslu á grunn- og framhaldsskólastigi og hefur starfað við kennaramenntun frá 1985, fyrst í Fósturskóla Íslands og síðar í Kennaraháskóla íslands og á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Hún hefur tekið þátt í rannsóknar- og þróunarstarfi í leik- og grunnskólum á sínu rannsóknarsviði. Einnig hefur hún unnið að rannsóknar- og þróunarverkefnum með öðrum kennaramenntunar-stofnunum á Norðurlöndum, Skotlandi, Nýja - Sjálandi og Ástralíu.

Kristín er gift Kristni Guðmundssyni, sjávarlíffræðingi, og eiga þau börnin Snorra, Önnu Rúnu, Grím og Birki og fimm barnabörn, þau Önju Kristínu, Lilju Maríu, Söru Helenu, Baldur Mána og Iðunni Heklu.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012