Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Doktorsvörn Hauks Þorgeirssonar: Hljóðkerfi og bragkerfi

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
26. nóvember 2013 - 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðasalur
Háskóli Íslands

Þriðjudaginn 26. nóvember fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Haukur Þorgeirsson doktorsritgerð sína: Hljóðkerfi og bragkerfi: Stoðhljóð, tónkvæði og önnur úrlausnarefni í íslenskri bragsögu ásamt útgáfu á Rímum af Ormari Fraðmarssyni.

Andmælendur eru Gunnar Ólafur Hansson, dósent við University of British Columbia, og  Michael Schulte, prófessor við Háskólann í Volda í Noregi. Aðalleiðbeinandi Hauks var Kristján Árnason, prófessor í íslenskri málfræði, en í doktorsnefnd voru auk hans Þórhallur Eyþórsson, dósent í ensku, og Bergljót Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum. Guðni Elísson, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands í Aðalbyggingu og hefst klukkan 13:00.

Um efni ritgerðarinnar

Í íslenskum kveðskap að fornu og nýju eru dæmi um að mismunandi hljóð standi saman í rími eða stuðlun. Til forna stuðlaði j við sérhljóð og a og ö stóðu saman í aðalhendingum. Enn í dag stuðla saman orð sem rituð eru með hí framstöðu þótt ólík séu í framburði (t.d. hjól, höfuð, hvalur). Fleiri dæmi má finna.

Sú kenning sem Haukur ver í ritgerðinni er að öll einkennileg fyrirbæri af þessu tagi séu best skýrð með kveðskaparhefðum, hljóðfræðilegum líkindum og stuðningi af stafsetningu. Gjarnan er þá um mjög langlífar hefðarreglur að ræða og má segja að kveðskapurinn miðist að sumu leyti enn við norrænt mál eins og það var nokkrum öldum fyrir landnám Íslands.

Rökum er teflt gegn þeirri hugmynd að baklægar gerðir generatífrar hljóðkerfisfræði séu haldbærar til skýringar á kveðskap. Hugmyndir formgerðarsinna um að líkindi hljóða ráðist einkum af dreifingu þeirra og stöðu í hljóðkerfinu eru einnig teknar til gagnrýninnar skoðunar.

Það sögulega vandamál sem mest rými fær í ritgerðinni er hvernig skáld á síðmiðöldum hafi haldið aðgreindum orðum með fornum og nýjum ur-endingum. Íslenska hafði frá upphafi ur-endingar m.a. í orðmyndum eins og tungur en um 1300 fengu orðmyndir eins og ungr innskots-u og til urðu nýjar ur-endingar. Haukur rökstyður að íslenska hafi að fornu verið tónamál eins og norska og að mismunandi tónkvæði hafi skipt máli fyrir skáldin. Orðmyndir eins og tungur og ungur hafa þá haft mismunandi tónfall og ekki rímað fullkomlega saman.

Um doktorsefnið

Haukur Þorgeirsson er fæddur 14. júlí 1980. Hann hefur lokið BS-prófi í tölvunarverkfræði, MS-prófi í tölvunarfræði og BA-prófi í íslensku og almennum málvísindum frá Háskóla Íslands. Auk kennslu- og rannsóknarstarfa hefur Haukur starfað sem forritari, meðal annars hjá Landsbókasafni Íslands og vefversluninni Amazon. Haukur er kvæntur Arndísi Þórarinsdóttur, bókmenntafræðingi, og eiga þau tvö börn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012