Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Opið málþing: Notkun sjálfsmyndarhugtaksins

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
25. september 2015 - 13:00 til 17:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
132
Háskóli Íslands

Rannsóknasetrið EDDA heldur, í samstarfi við L’Ecole des Hautes Etudes en Sciences Sociales (EHESS) í París, opið málþing um notkun sjálfsmyndarhugtaksins.

Lykilfyrirlesari er Vincent Descombes, prófessors í heimspeki EHESS í París. Descombes er meðal fremstu heimspekinga samtímans og hefur skrifað áhrifamikil verk á sviði heimspeki tungumála og bókmennta. Árið 2013 gaf hann út bókina Les embarras de l’identité sem verið er að þýða á ensku undir heitinu Puzzling Identities.

Á málþinginu munu nokkrir fræðimenn við Háskóla Íslands, þau Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor í bókmenntafræði, Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði, Gunnar Harðarson, prófessor í heimspeki, Björn Þorsteinsson, lektor í heimspeki og Philippe Urfalino, prófessor í félagsfræði við EHESS einnig flytja erindi. Sjá nánar um málþingið á heimasíðu EDDU.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012