
Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í samstarfi við sendiráð Noregs á Íslandi
Rolf Tamnes, formaður sérfræðingahóps um nýja stefnu Noregs í öryggis- og varnarmálum, kynnir skýrsluna „Unified effort“ sem varnarmálaráðuneyti Noregs gaf nýverið út. Skýrslan tekur mið af breyttum veruleika, auknum óstöðugleika og nýjum ógnum í Vestur-Evrópu, sem krefjast aukinnar samvinnu í varnarmálum í norðri.
Hér er hægt að nálgast skýrsluna í heild sinni: https://www.regjeringen.no/globalassets/departementene/fd/dokumenter/unified-effort.pdf
Umræður:
Valur Ingimundarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands
Redefining a "New Normal": Norwegian Military Thinking and the Return to Geopolitics
Fundarstjóri: Þórunn Elísabet Bogadóttir, aðstoðarritstjóri Kjarnans.
Fundurinn fer fram á ensku og eru allir velkomnir.
Nánari upplýsingar: www.ams.hi.is
Alþjóðamálastofnun á Facebook: www.facebook.com/althjodamalastofnun