
Annadís Greta Rúdólfsdóttir, lektor í aðferðafræði rannsókna við Háskóla Íslands, flytur fyrirlesturinn
„Óþekk(t)ar ömmur"
Gerð er grein fyrir ævi nútímakvennanna Fanneyjar Bjarnadóttur (1913-2008) og Svövu Sigurðardóttur (1914-2012). Báðar voru fæddar utan hjónabands og voru lágt settar í stigskiptu kerfi samfélagsins. Þær gegndu hlutverkum móður og eiginkonu en voru einnig kynverur og neytendur samtímamenningar. Lífshlaup þeirra er sett í samhengi við hefðbundna hugmyndafræði um hina „góðu móður” og hvernig þær hugmyndir hafa haft áhrif á afstöðu afkomenda til þeirra og þær minningar sem lifa um þær.
Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröðinni „Margar myndir ömmu“ sem Rannsóknastofa í Jafnréttisfræðum (RIKK) heldur og styrkt er af framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna.
Viðburðurinn er öllum opinn og er á Facebook.