
Heimspekispjall – Gagnrýnin hugsun og fjölmiðlar.
Róbert H.Haraldsson prófessor í heimspeki mun skoða íslenska blaða-og fréttamennsku í ljósi viðmiða um gagnrýna hugsun.Fyrst verður sett fram skilgreining á gagnrýninni hugsun og nokkrum viðmiðum hennar lýst. Þá verður vakin athygli á þrenns konar tilhneigingum í íslenskri fréttamennsku sem hver um sig getur grafið undan vandaðri og hlutlægri blaðamennsku og ógnað sjálfstæði fjölmiðla. Í fyrsta lagi verður spurt hvort mörk frétta og auglýsinga hafa smám saman verið að mást út á undanförnum áratugum hér á landi. Í öðru lagi verður skoðað það einkenni á íslenskri blaðamennsku sem nefna mætti „hann sagði, hún sagði“ fréttamennska, en þar eru viðhorf ólíkra viðmælenda leidd fram án þess að tilraun sé gerð til að meta sanngildi eða trúverðugleika þeirra. Í þriðja lagi verður skoðað hvernig íslenskir fréttamenn setja sig í auknum mæli í spor nokkurs konar þerapista sem hlusta með ógagnrýnum hætti á sögur þolenda af hvers kyns óréttlæti sem þeir telja sig hafa orðið fyrir. Í fyrirlestrinum er því haldið fram að fái þessar tilhneigingar að vaxa óhindraðar þá sé úti um gagnrýna fréttamennsku á Íslandi.