Hvenær hefst þessi viðburður:
25. september 2015 - 13:15 til 15:45
Nánari staðsetning:
Hallgrímskirkja í Reykjavík, suðurálmu.

"KÍMNI OG SKOP Í NÝJA TESTAMENTINU" 50 ára
- Dr. Jakob Jónsson (1904-1989), fræðimaður, skáld og guðfræðingur
Málþing í tilefni 50 ára frá útkomu doktorsritgerðar sr. Jakobs Jónssonar, HUMOUR AND IRONY IN THE NEW TESTAMENT (Bókaútg. Menningarsjóðs 1965; Leiden - E.J. Brill 1985). Kímni og skop í Nýja Testamentinu (Þýðing höf., Bókaútg. Menningarsjóðs 1990).
Fundarstjóri: Ragnhildur Bragadóttir sagnfræðingur
Kl. 13:15 Samkoma sett. Dr. Sigurður Árni Þórðarson
Kl. 13:20 - 13:50 Dr. Þór Jakobsson veðurfræðingur:
Kímni og skop í hálfa öld. Bókin og útbreiðsla hennar í fræðaheiminum samkvæmt veraldarvefnum.
Kl. 13:50 - 14:05 Jakob S. Jónsson leikhúsfræðingur og leikstjóri:
Jakob Jónsson frá Hrauni: Leikskáld sem leynir á sér
Kl. 14:05 - 14:20 Dr. Hjalti Hugason prófessor, Háskóla Íslands:
Húmor, ironía og melankolía — Hugleiðingar um guðfræðinginn dr. Jakob Jónsson
Kl. 14:20 - 14:40 Dr. Sigurður Árni Þórðarson, sóknarprestur Hallgrímskirkju:
Um Hallgrímssálma, höfund þeirra og dr. Jakob Jónsson
Kl. 14:40 - 14:50 Spurningar og svör.
Kl. 14:50 - 15:45 Yfir kaffi og kleinum að lokum munu þeir sr. Karl Sigurbjörnsson fyrrum biskup Íslands og Hörður Áskelsson organisti og kantor Hallgrímskirkju minnast í léttum dúr kynna sinna við sr. Jakob.
Allir velkomnir.
Frekari upplýsingar veitir Þór Jakobsson.
Netfang: thor.jakobsson@gmal.com .
Farsími 699-1487.