Hvenær hefst þessi viðburður:
12. nóvember 2015 - 13:00
Staðsetning viðburðar:

Á árlegum Alþjóðadegi Háskóla Íslands getur þú kynnt þér spennandi möguleika á námi og samstarfi erlendis. Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 500 háskóla um allan heim um stúdenta- og starfsmannaskipti, rannsóknir og kennslu.
Gestum gefst kostur á að kynna sér skiptinám, nám á eigin vegum, starfsnám og kennara- og starfsmannaskipti. Þá býðst þeim að ræða við erlenda skiptinema, fyrrverandi skiptinema, fulltrúa sendiráða og ræðisskrifstofa og fulltrúa fjölmargra íslenskra stofnana og félaga.
Nánari dagskrá verður auglýst síðar.