Hvenær hefst þessi viðburður:
12. nóvember 2015 - 13:00 til 17:00
Nánari staðsetning:
Radisson BLU Hótel Saga

Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands stendur fyrir Nýsköpunarráðstefnu í annað sinn fimmtudaginn 12. nóvember 2015 á Radisson BLU Hótel Sögu. Þar gefst starfsfólki og nemendum Háskólans kostur á að kynna verkefni og hugmyndir um nýsköpun í heilbrigðisvísindum, sem og öðrum samstarfsaðilum.
Undir nýsköpun fellur til dæmis frumkvöðlastarf, nýjar lausnir og hugmyndir sem unnið er að, s.s. nýjar vörur, nýjar aðferðir og nýjar leiðir í þjónustu, greiningu og meðferð. Áhersla verður lögð á tilgang og gagn verkefnanna fyrir samfélag og atvinnulíf, svo og á hagnýtingu sem leiðir til ávinnings og virðisauka.
Þátttaka í ráðstefnunni er endurgjaldslaus en skráning er skilyrði.
Sjá nánar á vefsíðu ráðstefnunnar: radstefnurhvs.hi.is