Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Doktorsvörn í umhverfis- og auðlindafræði: Ruth Shortall

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
25. ágúst 2015 - 14:00 til 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðasalur
Ruth Shortall

Ruth Shortall ver doktorsritgerð sína í umhverfis- og auðlindafræði frá Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið Sjálfbærnivísar fyrir jarðvarmavirkjanir (A Sustainability Assessment Framework for Geothermal Energy Developments). 

Andmælendur eru dr. Ladislaus Rybach prófessor emeritus við Institute of Geophysicis, ETH Zurich og dr. Ernst Worrell prófessor við Utrecht háskóla Í Hollandi og vísindaleiðtogi við Copernicus Institute of Sustainable Development við Utrecht háskóla.

Leiðbeinandi var dr. Brynhildur Davíðsdóttir prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Líf- og umhverfisvísindadeild og Hagfræðideild Háskóla Íslands. Auk hennar sátu í doktorsnefnd dr. Guðni Axelsson sérfræðingur hjá Íslenskum Orkurannsóknum (ISOR) og dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands. 

Dr. Eva Benediktsdóttir, dósent og forseti Líf- og umhverfisvísindadeildar Háskóla Íslands, stjórnar athöfninni.

Ágrip af rannsókn

Með aukinni orkunotkun á heimsvísu er líklegt að nýting jarðvarma til rafmagnsframleiðslu muni aukast í framtíðinni. Sjálfbær þróun kallar á sjálfbæra nýtingu orkukerfa og þar sem nýting jarðvarma getur bæði haft jákvæð og neikvæð áhrif á sjálfbærni er mikilvægt að neikvæð áhrif séu lágmörkuð.  Sjálfbærnigreiningar geta stuðlað að skilvirkari ákvarðanatöku þegar kemur að þróun orkukerfa og er markmið þessarrar rannsóknar að setja fram ramma sem og aðferðafræði til að meta áhrif nýtingar jarðvarma á sjálfbærni.  Rannsóknin gefur yfirlit yfir helstu áhrif nýtingar jarðvarma á sjálfbæra þróun, sem og yfirlit yfir helstu ramma sem notaðir eru til mats á sjálfbærni.  Matsrammi er síðan settur fram sem inniheldur 10 sjálfbærni markmið og 21 kjarnavísa, sem og 18 valkvæða vísa sem gefa til kynna hvort markmiðin séu uppfyllt.   Rannsóknin sýnir framá mikilvægi þess að haghafar taki þátt í sjálfbærnigreiningum, en bæði vísarnir sem og markmiðin voru valin með þátttöku haghafa á Íslandi, í Kenýa og á Nýja Sjálandi sem og þátttöku fyrrum nemenda jarðhitaskóla SÞ.  Munur var milli landa hvað haghafar töldu mikilvægt þegar kemur að sjálfbærri nýtingu jarðvarma.  Umhverfisstjórnun var mikilvæg á Íslandi, Nýja Sjálandi og í Kenýa en áhrif á vatnsbúskap var  taklið mikilvægt atriði af fyrrum nemendum Jarðhitaskóla SÞ. Íslenskir haghafar töldu endurnýjanleika auðlindarinnar mikilvægan sem og gegnsæi í upplýsingarflæði en haghafar í Kenýa og Nýja Sjálandi töldu skilvirka fjármálastjórn sem og rannsóknir og nýsköpun mikilvæg atriði. Rannsóknin dregur fram mun sem og líkindi milli haghafa í mismunandi löndum, en lokaafurð ritgerðarinnar er heildstæður rammi til að meta áhrif nýtingar jarðvarma á sjálfbæra þróun sem nýta má í mismunandi samfélögum um allan heim.

Um doktorsefnið

Ruth Shortall er frá Co. Laois á Írlandi og hefur verið búsett á Íslandi frá árinu 2007. Hún lauk meistaragráðu í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands árið 2010 og meistaragráðu í tölvunarfræði frá Queens háskóla í Belfast árið 2004. Rannsókn Ruth var styrkt af Rannís í gengum klasastyrkinn Georg.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012