
Guðrún Edda Sveinbjörnsdóttir flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í byggingarverkfræði. Heiti verkefnisins er Umferðarslysasaga ökumanna með heilabilun.
Ágrip.
Akstur í umferð er flókið ferli og beri eitthvað út af eru afleiðingarnar gjarnan alvarlegar og óafturkræfar. Því ber, eins og unnt er, að fækka slysum og gera umferðina eins örugga og kostur er. Skert heilsa, meðal annars ýmiss konar heilabilun, hefur áhrif á hæfni ökumanna til hins verra og því mikilvægt að átta sig á henni. Könnuð voru bandarísk gögn um meinta heilabilaða ökumenn. Í úrtakinu voru 2.269 einstaklingar í Missouri með hugsanlega heilabilun og 11.615 í samanburðarhópi. Hópar heilabilunar voru þrír; einstaklingar með Alzheimer sjúkdóm, vitræna skerðingu og annan heilaskaða. Sýndu niðurstöður rannsóknarinnar að slysahlutfall hópanna var 29,8% (Alzheimer sjúkdómur), 33,0% (vitræn skerðing), 33,5% (annar heilaskaði) og 7,4% (samanburðarhópur). Þeir einstaklingar sem voru með hugsanlega heilabilun og lentu í slysi á tímabilinu voru einnig líklegri en samanburðarhópur til að lenda í fleiri en einu slysi, og þá sérstaklega hópur einstaklinga með annan heilaskaða. Slys heilabiluðu hópanna voru marktækt fleiri á þurrum vegi miðað við samanburðarhópinn sem gefur til kynna að einstaklingar með heilabilun aki helst við góðar aðstæður. Slys samanburðarhópsins voru líklegust til að valda engum meiðslum og slys einstaklinga með annan heilaskaða voru líklegust til að valda alvarlegustu meiðslunum. Tölfræðipróf sýndi marktækan mun á milli hópanna og ollu slys samanburðarhóps ekki jafn alvarlegum meiðslum og slys hinna hópanna. Aukin fræðsla um einkenni heilabilunar er mikilvæg, auk nákvæmrar og aðgengilegrar slysaskráningar svo hægt sé að vera vakandi fyrir hugsanlegum vandamálum. Vanda þeirra sem reynast óhæfir til þess að aka verður síðan að leysa með efldum almenningssamgöngum.
Leiðbeinendur
Guðmundur Freyr Úlfarsson, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ
Sigurður Erlingsson, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ
Prófdómari er Þorsteinn R. Hermannson, fagstjóri hjá Mannvit.