Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Baráttan gegn Trident-kjarnorkuvopnunum í Skotlandi og áhrif hennar á umheiminn

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
5. ágúst 2015 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Oddi 101
Háskóli Íslands

Opinn fundur: Miðvikudaginn 5. ágúst frá kl. 12 til 13 í Odda 101.

Baráttan gegn Trident-kjarnorkuvopnunum í Skotlandi og áhrif hennar á umheiminn
Scottish resistance to Trident on our soil, and the  implications for the UK and the wider world

Kjarnorkuvopnabúr Bretlands er geymt í Faslane-kafbátastöðinni í grennd við Glasgow í Skotlandi. Friðarsinnar hafa barist gegn stöðinni um árabil og dregið fram ýmsar skuggalegar upplýsingar um ástand kjarnorkuflotans. Um nokkurra ára skeið hefur verið rætt um endurnýjun Trident-kjarnorkuflauganna og hefur það mál haft víðtæk pólitísk áhrif
og tengst m.a. umræðu um mögulegt sjálfstæði Skotlands.

Veronika Tudhope er varaforseti Skotlandsdeildar CND (Campaign for Nuclear Disarmament) og á sæti í aðalstjórn CND í Bretlandi. Hún hefur á liðnum árum tekið virkan þátt í baráttunni gegn kjarnorkuvopnum.

Fundarstjóri: Kristinn Schram, lektor í þjóðfræði við Háskóla Íslands

Fundurinn verður á ensku og er öllum opinn.

Aðstandendur: Samstarfshópur friðarhreyfinga og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands
 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012