Hvenær hefst þessi viðburður:
30. júní 2015 - 14:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Hátíðasalur

Jón Atli Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði, tekur formlega við embætti rektors Háskóla Íslands af Kristínu Ingólfsdóttur, prófessor í lyfjafræði, við athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands 30. júní kl. 14.00.
Eftir að Ebba Þóra Hvannberg, prófessor í tölvunarfræði og varaforseti háskólaráðs, hefur sett athöfnina flytur Kristín Ingólfsdóttir, fráfarandi rektor, kveðjuávarp og afhendir í framhaldinu eftirmanni sínum, Jóni Atla, tákn rektorsembættisins. Að því loknu flytur Jón Atli einnig ávarp.
Tónlistarflutningur verður við athöfnina.