Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

MPH vörn: Unintentional injuries among older adults in the capital region of Iceland in 2011-2012.

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
12. júní 2015 - 10:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
stofa 101
María Guðnadóttir

María Guðnadóttir ver meistaraverkefni í lýðheilsuvísindum frá Læknadeild:

„Unintentional injuries among older adults in the capital region of Iceland in 2011-2012. A retrospective observational incidence study“

Umsjónarkennari Maríu var Brynjólfur Mogensen, dósent við Læknadeild. Leiðbeinandi var Edda Björk Þórðardóttir, doktorsnemi í Lýðheilusvísindum. Auk þeirra sat í meistaranefnd Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir, lektor við Hjúkrunarfræðideild.

Prófdómari er Pálmi V. Jónsson, yfirlæknir, prófessor við Læknadeild.

Allir velkomnir.

Ágrip:
Bakgrunnur: Fyrri rannsóknir benda til að slys séu leiðandi orsök meiðsla á meðal aldraðra og að tíðni slysa aukist með aldri. Slys geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér, bæði líkamlegar og andlegar. Á Íslandi er skortur á faraldsfræðilegum rannsóknum um slysatíðni meðal aldraðra ásamt áhættuþáttum fyrir slys meðal þessa aldurshóps.
Markmið: Kannað var hver árlegur fjöldi koma á bráðamóttöku Landspítala háskólasjúkrahúss (LSH) vegna meiðsla af völdum slysa væri á meðal aldraðra á árunum 2011-2012. Áhættuþættir fyrir slysum t.d. aldur og kyn, voru skoðaðir, ásamt orsökum og afleiðingum slysa.
Aðferðir: Rannsóknarhópurinn samanstóð af einstaklingum 67 ára og eldri, búsettum á höfuðborgarsvæðinu, sem komu á bráðamóttöku LSH á árunum 2011 og 2012. Gagna var aflað úr komuskráningarkerfi NOMESCO og rafrænni sjúkraskrá SÖGU um allar komur vegna slysa, aðstæður slyss og ICD-10 greiningu. Lýsandi tölfræði var notuð til að skoða gögnin. Tengsl milli breyta voru könnuð með kí-kvaðrat prófi og auk þess var Poisson aðhvarfsgreining notuð til að greina hvort það væri munur á fjölda koma á milli áranna 2011 og 2012, aldursflokka og kynja.
Niðurstöður: Alls voru 4.469 komur aldraðra á bráðamóttöku LSH  á tímabilinu. Af hverjum 1.000 íbúum 67 ára og eldri leituðu að meðaltali 106 til bráðamóttökunnar á þessu tímabili vegna meiðsla. Slysatíðni jókst línulega með hækkandi aldri (p<0.001) og var mest í aldurshópnum 90 ára og eldri (134 slys per 1.000 íbúa). Fleiri konur en karlar leituðu á bráðamóttöku LSH á tímabilinu í öllum aldursflokkum af hverjum 1.000 íbúum (RR = 1,19, 95% CI 1,11-1,26). Flest slysanna eða 73% (3.283/4.469) gerðust á heimili eða í næsta nágrenni þess. Helstu orsakir slysanna voru föll (3.302/4.469; 74%), bæði á meðal kvenna (2.207/2.776; 80%) og karla (1.095/1.693; 65%). Algengustu meiðslin voru brot (1.508/4.922; 31%)
Ályktanir: Niðurstöður gefa til kynna að slysavarnir aldraðra þurfi að beinast að heimilum og leggja áherslu á inngrip sem koma í veg fyrir föll á meðal aldraðra. Auk þess þurfa inngrip að beinast að konum og þeim elstu innan þessa aldurshóps.
 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012