Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

MPH vörn: Flourishing in Iceland. Content, Prevalence and Indicators.

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
12. júní 2015 - 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
stofa 101
Karen Erla Karólínudóttir

Karen Erla Karólínudóttir ver meistaraverkefni í lýðheilsuvísindum frá Læknadeild:

"Flourishing in Iceland. Content, Prevalence and Indicators"

Umsjónarkennari Karenar var Arna Hauksdóttir, dósent við Læknadeild. Leiðbeinandi var Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, Cand.Psych, Embætti landlæknis. Auk þeirra sat í meistaranefnd Hulda Þórisdóttir, lektor við Stjórnmálafræðideild.

Prófdómari er Daníel Þór Ólason, dósent við Sálfræðideild.

Allir velkominir.

Ágrip:
Rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi andlegar vellíðanar og bæði stjórnmálamenn og fræðimenn hafa kallað eftir mælitækjum til að mæla andlega vellíðan með það að markmiði að meta árangur stjórnvalda og hafa áhrif á opinbera ákvarðanatöku.  Rannsóknum á andlegri vellíðan má skipta í tvo flokka sem fjalla annars vegar um tilfinningar (hedónisma) og hins vegar um virkni (eudaimonisma) . Kenningin um döfnun nær bæði yfir tilfinningar og virkni og því er nauðsynlegt að mælitæki döfnunar mæli bæði tilfinningar og virkni . Fyrri rannsókn á döfnun sýndi hæsta algengi döfnunar í Danmörku og algengi hinna Norðurlandanna var líka með því hæsta sem mældist. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna algengi döfnunar á Íslandi og forspárþætti hennar. Nánar tiltekið að A) mæla algengi döfnunar á Íslandi, b) bera algengi döfnunar á Íslandi saman við algengi annarra Evrópulanda c) að skoða forspárþætti döfnunar á Íslandi, svo sem lýðfræðilega og efnahagslega þætti og að d) kanna fræðilegan grunn döfnunar með tilliti til skiptingar hans í jákvæða eiginleika og jákvæða virkni. Tvö gagnasöfn voru notuð, það fyrra Lífsviðhorf Evrópubúa (The European Social Survey), þar sem notað var lagskipt klasaúrtak 1,431 Íslendinga með 752 (53%) svörum ásamt svörum frá öllum 29 þátttökulöndum ESS (N =54,673) við samanburð milli landa. Síðara úrtakið inniheldur 10,093 einstaklinga þar sem 6,783 (67%) svöruðu spurningalista um Heilsu og líðan Íslendinga á árinu 2012. Byggt var á kenningu Huppert og So (2013) um döfnun sem nær yfir 10 þætti, þ.e.; hæfni, bjartsýni, sjálfstraust, seiglu, jákvæð samskipti, jákvæðar tilfinningar, áhugahvöt, tilfinningalegan stöðugleika, tilgang og lífsorku. Algengi döfnunar á Íslandi mældist 42%, fimmta hæsta hlutfall í Evrópu en heildaralgengið mældist þar 26%. Jákvætt samband var milli döfnunar og aldurs þar sem þátttakendur á aldrinum 60-69 ára  uppfylltu flestir  skilirðu um döfnun en fæstir úr yngsta aldurshópnum (15-19 ára) uppfylltu skilyrðin. Tengsl voru milli þess að dafna og meiri menntunar, hjónabands, að hafa atvinnu, hærri tekna og lítilla fjárhagsáhyggja. Niðurstöður staðfestandi þáttagreiningar voru í samræmi við fyrri rannsókn með tilliti til skiptingar mælingarinnar í jákvæða eiginleika og jákvæða virkni. Ísland skipast í hóp Norðurlandanna með hátt algengi döfnunar. Samband döfnunar við félagslega og efnahagslega þætti er í samræmi við samband þessara þátta við aðrar vellíðunarmælingar. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að mælingin á döfnun sé stöðug og næm fyrir breytingum yfir tíma þar sem einnig má greina pólitískar og efnahagslegar breytingar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012