Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Hvernig er unnt að fyrirbyggja óhóflegan ójöfnuð og efnahagslegar kollsteypur?

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
15. júní 2015 - 12:00 til 15:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðasalur
Háskóli Íslands
Dr. Ravi Batra flytur fyrirlestur í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands mánudaginn 15. júní kl. 12. Dr. Batra mun í fyrirlestrinum greina frá rannsóknum sínum á sviði samspils óhóflegs ójafnaðar og efnahagskollsteypa. Einnig mun hann fjalla um leiðir til að fyrirbyggja slíkt, með t.d. aukinni samkeppni á markaði og með því bæta kjör vinnandi fólks og draga úr hagsveiflum.
 
Dr. Ravi Batra er prófessor í hagfræði við Southern Methodist University í Dallas. Hann er höfundur fimm alþjóðlegra metsölubóka og fjölda ritrýndra greina í þekktustu hagfræðiritum heims. Dr. Batra var í grein í Economic Enquiry í október 1978 talinn til hóps „ofurstjarna í hagfræði“ í Bandaríkjunum og Kanada. Forsætisráðherra Ítalíu veitti honum Orðu Öldungadeildar Ítalíu árið 1990 fyrir að spá réttilega fyrir um fall Sovétríkjanna fimmtán árum áður. Árið 2009 hlaut Batra viðurkenningu Pratima and Navin Doshi fyrir framlag sitt til hagfræðigreiningar. 
 
Dagskrá
Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands og fundarstjóri, setur fundinn 
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, ávarpar fundinn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra flytur inngangserindi
Ravi Batra prófessor flytur fyrirlestur
Eftir erindin gefst kostur á umræðum og fyrirspurnum
 
Fundurinn fer fram á ensku. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
 
Fundurinn er í boði Háskóla Íslands, forsætisráðuneytisins og Seðlabanka Íslands.
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012