Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Afleiðingar valdstjórnar: Hvaða áhrif hefur þróun mála í Rússlandi í raun og veru?

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
19. júní 2015 - 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Háskóli Íslands

Opin málstofa á vegum EDDU – öndvegisseturs og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands

Margir muna ummæli Pútíns, skömmu eftir að hann tók við forsetaembætti í Rússlandi í fyrsta skipti, að einungis bjánar vildu endureisa Sovetríkin en þeir sem ekki hörmuðu hrun þeirra væru hinsvegar tilfinningasnauðir. Á síðustu mánuðum hafa stjórnvöld í Rússlandi þó ekki hikað við að endurvekja ýmsar venjur fyrri tíma og margar stofnanir fortíðarinnar eru nú endurmetnar. Rússnesk þjóðernishyggja með sovésku ívafi er nánast opinber stjórnarstefna. Þessi þróun hefur haft og mun hafa talsverðar afleiðingar. Rússland er sambandsríki og innan þess eru bæði „lýðveldi“ og ýmsar aðrar einingar sem njóta mismikils sjáfsræðis. Það má segja að það sé opin spurning hvernig tengslin á milli stjórnvalda í Moskvu og þeirra yfirvalda um landið sem undir þau heyra, muni þróast í nánustu framtíð. Hvort sem hugsun ræður för eða tilfinningar eru ríkjandi, þá hefur aukin valdstjórn í Rússlandi haft í för með sér ákveðnari utnaríkisstefnu og minni sáttfýsi gagnvart hagsmunum annarra ríkja, auk þess sem borið hefur á vilja til að sniðganga ýmsar reglur og viðmið alþjóðasamskipta.

Í málstofunni verða afleiðingar nýlegra breytinga á stjórnarstefnu í Rússlandi ræddar, ekki síst í ljósi hagsmuna smærri ríkja og sjálfsstjórnarsvæða í Rússlandi og Evrópu. Hvaða ályktanir ætti ríki eins og Ísland að draga um hvernig rétt er að móta stefnu til framtíðar gagnvart Rússlandi?

Fundarstjórn og inngangserindi
Rósa Magnúsdóttir, lektor í Rússlandsfræðum við Árósaháskóla

Sérstakur gestur
Sergei Medvedev, prófessor í stjórnmálafræði við Hagfræðiháskóla Moskvu

Þátttakendur í pallborði
Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði, Háskóla Íslands
Maximiliam Conrad, lektor í stjórnmálafræði, Háskóla Íslands
Valur Ingimundarson, prófessor í sagnfræði, Háskóla Íslands


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012