Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Ráðstefna um gæðakerfi íslenskra háskóla

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
8. júní 2015 - 13:30 til 16:15
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðasalur
Háskóli Íslands
Gæðaráð íslenskra háskóla býður til ráðstefnu í Hátíðasal Háskóla Íslands mánudaginn 8. júní kl. 13:30-16:15. Tilgangur ráðstefnunnar er að ræða um reynslu af gæðaeftirliti með háskólastarfsemi og verður fjallað sérstaklega um nýjustu úttekt ráðsins á gæðum náms við Háskóla Íslands. Ráðstefnan fer fram á ensku og er öllum opin á meðan húsrúm leyfir.
 
 
 
 
 
Dagskrá:
 
13:30  Niðurstöður gæðaúttektar á Háskóla Íslands
Norman Sharp, formaður Gæðaráðs háskóla og formaður ytri matshóps
14:00  Viðbrögð við gæðaúttekt á Háskóla Íslands
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands
14:15  Ábendingar hagsmunaaðila í úttekt á rammaáætlaun Gæðaráðs
Þorsteinn Gunnarsson, stjórnandi Gæðaráðs háskóla
14:30  Lærdómar af stofnanaúttektum í fyrstu lotu rammaáætlunar Gæðaráðs
Sigurður Óli Sigurðsson, sérfræðingur Gæðaráðs háskóla
14:45  Undirbúningur að annarri lotu rammaáætlunar Gæðaráðs
Norman Sharp formaður Gæðaráðs íslenskra háskóla
15:15  Kaffihlé
15:45 Reynsla og lærdómur Háskóla Íslands af framkvæmd rammaáætlunar Gæðaráðs
Jón Atli Benediktsson, aðstoðarrektor vísinda og kennslu við Háskóla Íslands (og verðandi rektor)
16:00  Næstu skref
16:15  Ráðstefnulok
 
Fundarstjóri: Þorsteinn Gunnarsson
 
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012