
Andrei Marmor - Um handahófskennt endurskoðunarvald dómstóla
Málstofa á vegum Heimspekistofnunar Háskóla Íslands og Lagastofnunar Háskóla Íslands.
Í erindi sínu, sem verður á ensku, mun Marmor fjalla um ein meginrökin fyrir endurskoðunarvaldi dómstóla, að slíkt vald sé nauðsynlegt svo setja megi skorður því lagalega og pólitíska valdi sem lýðræðisleg löggjafarferli veita meirihlutanum. Marmor hefur efasemndir um ágæti slíkra raka og færir rök fyrir því að eins og málum er í reynd háttað, að minnsta kosti í Bandaríkjunum, þá sé siðferðilega séð lítill sem enginn munur á fyrirkomulagi endurskoðunarvalds dómstóla og eins konar happdrættisfyrirkomulagi sem setti valdi meirihlutans skorður með algjörlega handahófskenndum hætti. Sé það rétt, þá stenst ein meginréttlætingin fyrir endurskoðunarvaldi dómstóla á endanum ekki, í það minnsta ekki í reynd.
Andrei Marmor er meðal fremstu réttarheimspekinga samtímans. Hann er sem stendur prófessor í heimspeki og lögum við University of Southern California, en mun færa sig um set nú í sumar og gerast prófessor í heimspeki og lögum við Cornell University. Marmor hefur birt fjölda greina og bóka um efni tengd lögum, siðferði og stjórnmálum, þar á meðal hjá Oxford University Press og Princeton University Press.
Allir velkomnir.