Hvenær hefst þessi viðburður:
6. maí 2015 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
stofa 101

Áföll geta haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar í för með sér og er kynferðisofbeldi eitt algengasta áfallið sem konur verða fyrir. Fjallað verður um doktorsverkefni þar sem markmiðið er að skoða hvort konum sem urðu fyrir kynferðisofbeldi á unglings- eða fullorðinsaldri sé hættara við að vera með áhættuþætti á meðgöngu eða í fæðingu síðar á lífsleiðinni, samanborið við konur sem ekki urðu fyrir slíku ofbeldi.
Erindið flytur Agnes Gísladóttir, doktorsnemi við Miðstöð í lýðheilsuvísindum. Leiðbeinandi Agnesar er Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor og varaforseti læknadeildar.