Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

"Kúgun kvenna" eftir John Stuart Mill og Sigurður Jónasson (1863-1887) frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
29. apríl 2015 - 16:30 til 18:00
Nánari staðsetning: 
Hallveigarstaðir, Túngötu 14, 101 Reykjavík
Háskóli Íslands

                                         D  A  G  S  K  R  Á

Fundarstjóri: Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, framkvæmdastýra KRFÍ

1. Steinunn Stefánsdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands, flytur kveðju frá Kvenréttindafélaginu.

2. Dr. Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands og kennari við sagnfræði- og heimspekideild Háskólans:  Hugleiðing um Kúgun kvenna.

3. Þór Jakobsson veðurfræðingur: Sigurður Jónasson frá Eyjólfsstöðum. Minningarstöpull á Blönduósi.  Lesinn örstuttur kafli úr „Kúgun kvenna“. 

4. Upplestur.  Nokkrir afkomenda Margrétar Oddnýjar Jónasdóttur o.fl.:
a. Lauslega sagt frá dagbókum Jónasar Guðmundssonar bónda á Eyjólfsstöðum.
b. Lesið úr Kaupmannahafnarbréfi Sigurðar til vinar heima í Vatnsdal.
c. Lesið úr „Minningum“ eftir Sigurðar Briem: Félagaþjark í Kaupmannahöfn 1884.
d. Flutt ljóðið „Draumur“ eftir Einar Benediktsson, skólabróður Sigurðar Jónassonar.
e. Lesið úr minningarorðum Sigurðar Nordals um fóstru hans, Steinunni Steinsdóttur á       Eyjólfsstöðum.

5. Auður Styrkársdóttir, forstöðukona Kvennasögusafns Íslands:  Ávarp í fundarlok.

Sigurður Jónasson frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal íslenskaði bókina „On the Subjection of Women“ eftir enska heimspekinginn John Stuart Mill (1806-1873).  Hún kom fyrst út árið 1869 og er grundvallarrit í vestrænni kvennabaráttu.  Ritið fékk heitið „Kúgun kvenna“ á íslensku. Hið íslenska kvenfélag gekkst fyrir útgáfu ritsins árið 1900.  Löngu seinna var ritið, að frumkvæði nemenda og kennara í kvennafélagsfræði við Háskóla Íslands, gefið út á ný árin 1997 og 2003 hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi.  Innan tveggja ára má búast við þriðju útgáfu hjá bókmenntafélaginu.

Sigurður lést á 24. aldursári, drukknaði af skipi er hann var á leið í framhaldsnám í Kaupmannahöfn.  Hann var öllum harmdauði. Þýðingarafrek hins unga manns er enn í minnum haft. Ættmenni hans vinna nú að því að reisa minningarstöpul á Blönduósi í samvinnu við Blönduósbæ. Afhjúpun er ráðgerð 7. ágúst nk.

Fjölskyldan á Eyjólfsstöðum var ekki stór. Að Sigurði látnum voru þar, auk foreldra hans, hjónanna Jónasar Guðmundssonar  Ólafssonar á Kirkjubæ í Norðurárdal í Austur-Húnavatnssýslu og Steinunnar Steinsdóttur frá Eyjólfsstöðum, dóttir þeirra Margrét Oddný og tveir uppeldissynir, Magnús Jónsson, síðar bókbindari, og Sigurður Nordal, síðar prófessor.  Sigurður Nordal, sem fæddist á Eyjólfsstöðum, var bróðursonur Jónasar Guðmundssonar og ólst upp hjá þeim Steinunni.

Fjármögnun til að kosta gerð og frágang minnismerkisins um Sigurð Jónasson og Kúgun kvenna fer nú fram. Þeir sem vilja og treysta sér til að leggjast á sveif eru góðfúslega beðnir að leggja inn á bankareikning sem hér segir:  Bankareikningur og kennitala:   515-14-121857 (Íslandsbanki); Kt. 051036-3449 (Heiti reiknings: „Kúgun kvenna“).


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012