Clik here to view.

Málþing á vegum Félags um átjándu aldar fræði
Flutt verða fjögur erindi sem hér segir:
Kílarfriðurinn 14. janúar 1814: Hvað gerðist?
Af hverju fylgdi Ísland ekki Noregi?
Anna Agnarsdóttir, prófessor í sagnfræði
Skilnaður Danmerkur og Noregs örlagaárið 1814: Harmafregn eða gleðiviðburður?
Afstaða íslenskra embættismanna til pólitískra sviptinga í danska ríkinu.
Margrét Gunnarsdóttir, doktorsnemi í sagnfræði
KAFFIHLÉ
„Dei gamle fjell i syningom“.
Áhrif umskiptanna í Noregi árið 1814 á norska menningu.
Gro-Tove Sandsmark, lektor í norsku
„sá maður er enginn hershöfðingi gat við jafnazt“.
Viðhorf Íslendinga til Napóleons Bónaparte.
Guðmundur J. Guðmundsson, sagnfræðingur
Fundarstjóri: Kristín Bragadóttir, doktorsnemi í sagnfræði
Flutningur hvers erindis tekur um 20 mínútur.
Um 10 mínútur gefast til fyrirspurna og umræðna að loknu hverju erindi.
Í hléi verða veitingar á boðstólum fyrir framan fyrirlestrasalinn.
Útdrættir úr erindum liggja frammi á málþinginu.
Þeir verða síðar aðgengilegir á heimasíðu félagsins, http://fraedi.is/18.oldin/
Stjórnin
Allir velkomnir!