Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Kynningarfundur - meistaranám í umhverfis- og auðlindafræði

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. mars 2015 - 12:30 til 13:10
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
O-101
Umhverfis- og auðlindafræði

Hefur þú áhuga á umhverfismálum og auðlindastjórnun? Þá gæti meistaranám í umhverfis- og auðlindafræðum verið fyrir þig.

Á kynningarfundinum mun Brynhildur Davíðsdóttir prófessor segja frá uppbyggingu námsins og svara spurningum ásamt kennurum námsins. 

Námið í umhverfis- og auðlindafræðum er tveggja ára (120 ECTS), alþjóðlegt og þverfræðilegt meistaranám sem skipulagt er sameiginlega af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands. 

 

Nemendur geta valið á milli fimm kjörsviða:

  • Sjálfbær orku- og iðnaðarkerfi
  • Umhverfisvísindi og stjórnun umhverfismála 
  • Stjórnun náttúruauðlinda 
  • Endurnýjanleg orka – orkuhagfræði, orkustefnumótun og sjálfbærni
  • Umhverfis- og auðlindafræði (opið svið)

 

Allir velkomnir. 

Nánari upplýsingar á umhverfi.hi.is og í kennsluskrá


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012