Hvenær hefst þessi viðburður:
25. mars 2015 - 11:00 til 12:00
Staðsetning viðburðar:

Grænir dagar eru röð viðburða innan Háskóla Íslands skipulagðir af GAIA, félagi meistaranema í umhverfis- og auðlindafræði.
Grænir dagar verða haldnir dagana 25. – 27. mars og er ætlað að stuðla að vitundarvakningu um ýmis aðkallandi umhverfismál. Þemað í ár er hafið og þær umhverfisógnir sem að því steðja, en ábyrgð, skilningur og góð umgengni gagnvart hafinu og lífríki þess er eitthvað sem skiptir okkur á Íslandi miklu máli.
Grænir dagar verða formlega settir á Háskólatorgi klukkan 11, gestir og ræðumenn verða:
- Guðbjörg Runólfsdóttir, formaður GAIA,
- Þröstur Þorsteinsson, umsjónarkennari framhaldsnáms í umhverfis- og auðlindafræði við Hí
- Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar
- Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
Á opnunarhátíðinni verður einnig farið yfir stöðu keppninnar Hjólað í Háskólann sem stúdentaráð stendur fyrir, en úrslitin verða svo tilkynnt á lokahófi Grænna daga, föstudaginn 27. mars.