Hvenær hefst þessi viðburður:
20. mars 2015 - 12:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
í Skeifunni

Sæmundarstund verður fagnað í fimmta sinn við styttuna af Sæmundi á selnum eftir Ásmund Sveinsson myndhöggvara á flötinni fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands föstudaginn 20. mars kl. 12. Markmiðið er að minnast Sæmundar Sigfússonar sem lærdómsmannts og þjóðsagnapersónu en athöfnin fer fram árlega á degi sem næst vorjafndægrum.
Dagskrá:
Fólk boðið velkomið
Þór Jakobsson, formaður Oddafélagsins, segir frá lærdómsmanninum og þjóðsagnapersónunni Sæmundi
Silja Rán Guðmundsdóttir, nemandi við Sálfræðideild og fulltrúi í Stúdentaráði, flytur ávarp.
Sæmundarskjöldur gengur frá nemendafélögum Heilbrigðisvísindasviðs.
Slit