Hvenær hefst þessi viðburður:
27. febrúar 2015 - 13:30
Nánari staðsetning:
Fyrirlestrasal
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Clik here to view.

Dr. Gunnar Kristjánsson prófastur á Reynivöllum í Kjós stendur á sjötugu. Af því tilefni er efnt til málþings um framlag Gunnars í ræðu og riti á ólíkum sviðum kirkjulífs, menningar og samfélagsumræðu.
Málþingið, sem er styrkt af Guðfræðistofnun, verður föstudaginn 27. febrúar kl. 13.30-16.30, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Þar verður m.a. rýnt í skrif Gunnars um trú, menningu og samfélag.
Flutt verða fjögur erindi:
- Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson: Frjálslynda guðfræðin sem fulltrúi lútherskrar guðfræði
- Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir: “Mikilvægasta hlutverk prestsins” – prédikunarguðfræði Gunnars Kristjánssonar
- Dr. Hjalti Hugason: Gunnar og kirkjupólitíkin við aldahvörf
- Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir: Guð – maður – náttúra – í frjálslyndri og póst-húmanískri guðfræði.
Að loknum erindum verður tími gefinn til umræðu og samtals áður en biskup Íslands, Agnes Sigurðardóttir, flytur lokaorð.
Fundarstjóri er Ævar Kjartansson og málþingið er öllum opið.