Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Offita og fullorðinssykursýki

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
26. janúar 2015 - 17:00 til 18:30
Nánari staðsetning: 
Fyrirlestrasalur Íslenskrar erfðagreiningar
Háskóli Íslands
Íslensk erfðagreining (ÍE) heldur opinn fræðslufund um offitu og fullorðinssykursýki mánudaginn 26. janúar kl. 17:00 – 18:30 Í fyrirlestrasal ÍE, Sturlugötu 8. Til fundarins er boðað í samráði við Samtök sykursjúkra.

Erindi flytja:

Ragnar Bjarnason, barnalæknir á Landspítala og prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands

Rafn Benediktsson, lyflæknir á Landspítala og prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands

Hilma Hólm, hjartalæknir við Landspítala og ÍE

Kári Stefánsson, læknir og erfðafræðingur við ÍE og prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands

Boðið verður upp á kaffiveitingar frá 16:30.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012