Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Kynningarfyrirlestur - Þórhallur Ingi Halldórsson, nýskipaður prófessor við Heilbrigðisvísindasvið

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
29. janúar 2015 - 15:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Skásal, Kvennadeild (kjallari) Landspítalans við Hringbraut
Þórhallur Ingi Halldórsson, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild flytur erindi í tilefni af framgangi sínum.

Á Heilbrigðisvísindasviði hefur verið tekin upp sú nýbreytni að halda upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestri. Athafnirnar hefjast með stuttu yfirliti yfir helstu störf viðkomandi prófessors, en svo tekur hann sjálfur við og flytur erindi um störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum. Í lok athafnarinnar gefst svo tækifæri til þess að spjalla og gleðjast með hinum nýja prófessor.

Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á hinum nýja prófessor, störfum hans og áherslum, ekki síst til þess að auka tengsl og samstarf innan skólans, en einnig til þess að hefja prófessorsstarfið til vegsemdar. Sjá nánar á www.hi.is/hvs/kynningarfyrirlestrar

Þann 29. janúar nk. flyturÞórhallur Ingi Halldórsson, nýr prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild, erindi í tilefni að framgangi sínum.

Allir velkomnir


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012