Hvenær hefst þessi viðburður:
12. september 2015 - 11:00
Nánari staðsetning:
Askja

Það er gaman að hjóla og það er gaman að leika sér. Nú sameinum við þetta tvennt og brunum eftir hjólastígum Reykjavíkur með þremur sprenglærðum heilsugúrúum frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Þau Anna Sigríður Ólafsdóttir, dósent í næringarfræði, Erlingur Jóhannsson, prófessor í íþrótta- og heilsufræði, og Sigurbjörn Árni Arngrímsson, prófessor í íþróttafræðum, ætla meðal annars að kenna okkur leiki, teygjur og æfingar og fræða okkur um íþróttanammi. Brottför kl. 11 á hjólum frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Ferðin tekur um 2 klst. og er farin í samstarfi við Ferðafélag barnanna.
Ferðin er liður í samstarfi Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands um göngu- og hjólaferðir undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti“ sem hófst á aldarafmælisári skólans árið 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna háskólans blandast saman í áhugaverðum ferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess. Ferðirnar verða níu talsins á árinu 2015 og tekur hver um tvær klukkustundir. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.
Markmiðið með samstarfinu er að vekja áhuga almennings á fræðslu og hollri útivist og fjölga valkostum í þeim efnum. Um leið er vakin athygli og vonandi áhugi á fjölbreyttri starfsemi háskólans og Ferðafélagsins.