Hvenær hefst þessi viðburður:
28. nóvember 2014 - 12:30
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
3 hæð.

Nemendur í námskeiðinu Tölvur og rafmagnað samspil halda tónleika föstudaginn 28. nóvember kl. 12:30-13:00.
Tónleikarnir verða haldnir í Listgreinahúsi Menntavísindasviðs, Skipholti 37, 3. hæð
Á dagskránni eru popplög í óvenjulegum útsetningum, frumsamin tónverk og ýmis önnur verkefni sem þau hafa unnið á námskeiðinu. Á milli atriða verða leiknar auglýsingar unnar af nemendum í Garage Band. Notast verður við rafmögnuð og órafmögnuð hljóðfæri en einnig verður leikið á iPad.
Allir áhugasamir um tónlist og tölvur í skólastarfi velkomnir!