Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Klukkuþreyta meðal Íslendinga

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. nóvember 2014 - 12:20 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, bókasafn.
Háskóli Íslands

Fyrirlesari: Björg Þorleifsdóttir, lektor við Læknadeild Háskóla Íslands.

Tímasetning svefns og vöku innan sólarhrings ákvarðast af lífklukkunni sem er stillt af sólarljósinu, en aðrir þættir sem taka mið af staðarklukku hafa einnig áhrif. Misræmi milli sólar- og staðartíma stuðlar að því að lífklukkan gengur ekki í takt við staðartíma. Of fljót staðarklukka stuðlar að seinkun háttatíma og afleiðingin er sú að á vinnudögum sérstaklega, þegar fótaferðartíminn er fastur, styttist svefntíminn. Fjölmargar rannsóknir sýna sterk tengsl milli skerts svefns og margháttaðra heilsufarsvandamála.

Í nær hálfa öld hefur klukkan á Íslandi verið stillt einni klukkustund á undan sólarklukku. Merki eru um að þetta valdi klukkuþreytu (social jetlag) meðal þjóðarinnar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012