Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Hvernig verður bók til? Auður Jónsdóttir ræðir um skáldsöguna Ósjálfrátt

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
21. nóvember 2014 - 12:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 105
Háskóli Íslands

Auður Jónsdóttir ræðir um bók sína Ósjálfrátt sem kom út árið 2012, hreppti Fjöruverðlaunin og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Auður Jónsdóttir hefur sent frá sér fjölda bóka jafn fyrir börn sem fullorðna og hefur þeim öllum verið vel tekið. Fyrsta bók hennar, Stjórnlaus lukka, kom út þegar höfundurinn var 25 ára og vakti strax mikla athygli. Fólkið í kjallaranum hreppti Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2004 og upp úr henni var síðar gerð vinsæl leikgerð. Ósjálfrátt fékk afar góðar viðtökur þegar hún kom út, ekki síst fyrir það hvernig Auður leikur sér að mörkum skáldskapar og veruleika. Hún hefur einnig tekið virkan þátt í þjóðmálaumræðunni með beittum pistlum.

Fyrirlestraröðinni Hvernig verður bók til? hefur verið haldið úti af námsbraut í ritlist og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands frá 2009. Þar hafa margir af virtustu höfundum þjóðarinnar rætt um ritverk sín. Fyrirlestur Auðar fer fram í stofu 105 á Háskólatorgi milli 12 og 13 föstudaginn 21. nóvember.

Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012