Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all 3012 articles
Browse latest View live

Grænir dagar – heimildarmyndin Mission Blue

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
25. mars 2015 - 16:00 til 18:00
Staðsetning viðburðar: 
Grænir dagar

Heimildarmyndin Mission Blue fylgir eftir sjávarlíffræðinginum Sylviu Earle og samtökum hennar en þau berjast fyrir bættri umgengni við sjóinn. Þetta er fyrsta og eina tækifærið til að sjá myndina á Íslandi þar sem Netflix á sýningarrétt myndarinnar. Eftir myndina mun aðili frá samtökunum Mission Blue tala við áhorfendur í gegnum Skype og hægt verður að spyrja spurninga.

Viðburðurinn er skipulagður af GAIA – félagi meistaranema í umhverfis- og auðlindafræðum, í samvinnu við Norræna Húsið og Mission Blue. Þeir eru öllum opnir og frítt er inn.

Grænir dagar – Fyrirlestrar um mengun og ágengar lífverur í sjónum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
25. mars 2015 - 13:20 til 15:40
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
O-206
Grænir dagar

Hver fyrirlestur er um 20 mínútur. Að loknum fyrirlestri verður hægt að spjalla við fyrirlesara og spyrja spurninga.

Efni:  Mengun og ágengar lífverur í sjónum.

Fyrirlesarar:

  • Karl Gunnarsson: Vísindamaður hjá Hafrannsóknarstofnun Íslands
  • Halldór Pálmar Halldórsson: Forstöðumaður við rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum

Fundarstjóri: Claire Barnes Runquist

Viðburðurinn er skipulagður af GAIA – félagi meistaranema í umhverfis- og auðlindafræðum. Viðburðir Grænna daga fara fram á ensku. Þeir eru öllum opnir og er frítt inn.

Opnunarathöfn Grænna daga í Háskóla Íslands

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
25. mars 2015 - 11:00 til 12:00
Staðsetning viðburðar: 
Grænir dagar

Grænir dagar eru röð viðburða innan Háskóla Íslands skipulagðir af GAIA, félagi meistaranema í umhverfis- og auðlindafræði.

Grænir dagar verða haldnir dagana 25. – 27. mars og er ætlað að stuðla að vitundarvakningu um ýmis aðkallandi umhverfismál. Þemað í ár er hafið og þær umhverfisógnir sem að því steðja, en ábyrgð, skilningur og góð umgengni gagnvart hafinu og lífríki þess er eitthvað sem skiptir okkur á Íslandi miklu máli.

Grænir dagar verða formlega settir á Háskólatorgi klukkan 11, gestir og ræðumenn verða:

  • Guðbjörg Runólfsdóttir, formaður GAIA,
  • Þröstur Þorsteinsson, umsjónarkennari framhaldsnáms í umhverfis- og auðlindafræði við Hí
  • Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar
  • Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar 

Á opnunarhátíðinni verður einnig farið yfir stöðu keppninnar Hjólað í Háskólann sem stúdentaráð stendur fyrir, en úrslitin verða svo tilkynnt á lokahófi Grænna daga, föstudaginn 27. mars. 

Kynningarfundur - meistaranám í umhverfis- og auðlindafræði

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. mars 2015 - 12:30 til 13:10
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
O-101
Umhverfis- og auðlindafræði

Hefur þú áhuga á umhverfismálum og auðlindastjórnun? Þá gæti meistaranám í umhverfis- og auðlindafræðum verið fyrir þig.

Á kynningarfundinum mun Brynhildur Davíðsdóttir prófessor segja frá uppbyggingu námsins og svara spurningum ásamt kennurum námsins. 

Námið í umhverfis- og auðlindafræðum er tveggja ára (120 ECTS), alþjóðlegt og þverfræðilegt meistaranám sem skipulagt er sameiginlega af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands. 

Nemendur geta valið á milli fimm kjörsviða:

  • Sjálfbær orku- og iðnaðarkerfi
  • Umhverfisvísindi og stjórnun umhverfismála 
  • Stjórnun náttúruauðlinda 
  • Endurnýjanleg orka – orkuhagfræði, orkustefnumótun og sjálfbærni
  • Umhverfis- og auðlindafræði (opið svið)

Allir velkomnir. 

Nánari upplýsingar á umhverfi.hi.is og í kennsluskrá

Tilkall til fortíðar – Saga fyrir konu sem ekki átti sögu

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. mars 2015 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 102
Sigrún Alba Sigurðardóttir
Sigrún Alba Sigurðardóttir, lektor  í menningarfræði flytur fyrirlesturinn „Tilkall til fortíðar – Saga fyrir konu sem ekki átti sögu“ í stofu 102 á Háskólatorgi kl. 12-13. Athugið að gengið er inn um aðaldyr Háskólatorgs og svo niður hringstiga vinstra megin. Í fyrirlestri sínum fjallar Sigrún Alba um föðurömmu sína Sigfríði Tómasdóttur, flóknar fjölskyldugerðir, vináttu og valdahlutföll á tuttugustu öld. Sigfríð fæddist á Seyðisfirði 31. maí 1907. Hún var ómagi, matráðskona og einstæð móðir. Hún var ómenntuð en hugmyndarík og hjartahlý og hafði einstakt lag á að takast á við erfiðleika með húmorinn að vopni. Í fyrirlestrinum veltir Sigrún Alba því fyrir sér hvaða tilkall hún hafi til sögu ömmu sinnar – og hvernig eigi að segja sögu konu sem skildi eftir sig örfáar heimildir en fjöldann allan af minningum, eins og raunin er með margt alþýðufólk. Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröðinni „Margar myndir ömmu“ sem RIKK heldur í samstarfi við Þjóðminjasafnið og styrkt er af framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Viðburðurinn er öllum opinn og er á Facebook.

Deilihagkerfið – tækifæri og ógnanir. Málstofa Hagfræðideildar

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. mars 2015 - 11:00 til 12:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Fundarherbergi á 3. hæð.
Háskóli Íslands

Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunnar, flytur erindið „Deilihagkerfið – tækifæri og ógnanir“ á málstofu Hagfræðideildar.

Fjallað verður um einkenni og drifkrafta deilihagkerfisins. Þá er sjónum beint að ýmsum álitaefnum, sérstaklega þeim sem snúa að hlutverki hins opinbera.
 
Allir velkomnir.

Innsetningarathöfn. Inaugural Lecture. Professor Bradley Thayer

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
8. apríl 2015 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
HT- 101
Innsetningarathöfn. Inaugural Lecture. Professor Bradley Thayer
Inaugural Lecture. Professor Bradley Thayer. Innsetningarathöfn  Bradleys Thayer, prófessor við Stjórnmálafræðideild, fer fram miðvikudaginn 8. apríl frá kl. 12.00 - 13:00 á Háskólatorgi HT-101. Á innsetningunni flytur Daði Már Kristófersson forseti Félagsvísindasviðs yfirlit yfir starfsferil Bradleys, auk þess mun Bradley flytja erindi í tilefni framgangs síns í starf prófessors. Boðið verður upp á veitingar að athöfn lokinni.

Fyrirlestur um fantasíu og töfraraunsæi í bókmenntum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. mars 2015 - 15:00 til 16:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 102
Mathilde_Walter_Clark

Danski rithöfundurinn Mathilde Walter Clark heldur hádegisfyrirlestur á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum um fantasíu og töfraraunsæi í bókmenntum. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Hvordan skriver man sig frem til virkeligheden?“ og fer fram á dönsku. Sérstakur viðmælandi er Einar Már Guðmundsson rithöfundur. Kynnir er Gísli Magnússon, lektor í dönskum bókmenntum, sem einnig stýrir umræðum.

Árið 2011 gaf Mathilde Walter Clark út smásagnasafn með titlinum Grumme historier (Grimmar sögur). Þessar sögur minna á Skuggann eftir H.C. Andersen, Sjö kynjasögur (Syv fantastiske fortællinger) eftir Karen Blixen og Furðulegar sögur (Sære historier) eftir Villy Sørensen. Í smásögum Mathilde gerast furðulegar atburðir: kona fisksalans breytist í fisk, matargagnrýnandi týnir líkamshluta í hvert skipti sem hann borðar sælkeramáltíð… En eru hugtökin ‚töfraraunsæi‘ og ‚fantasía‘ viðeigandi? Eða endurspegla þau þrönga bókmennta- og veruleikasýn? Ætti frekar að tala um heimspekilegar sögur? Til að svara þessum spurningum fjallar Mathilde um hvernig við sjáum hlutina. Mathilde telur að veruleikinn sé eitthvað sem við nálgumst og að ljóðræn skynjun sé leið til að nálgast raunheiminn. Á Íslandi er töfraraunsæishefðin mjög sterk og rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson tekur þátt í umræðum um hvernig skilja megi tengslin á milli veruleika og bókmennta.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Viðburðurinn er skipulagður af Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og námsleið í dönsku, með styrk frá Samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis og Kunststyrelsen, menningarstofnun Dana.

Verkefnavaka HÍ 2015

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
26. mars 2015 - 17:00 til 22:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Bókasafn og ritver
Háskóli Íslands
Fyrir alla stúdenta Háskóla Íslands sem eru með verkefni í smíðum, smá eða stór, námskeiðsverkefni eða lokaverkefni. Bókasafnið og ritverið verða opin og starfsmenn á vakt fram eftir kvöldi. Leiðsögn og leiðbeiningar eftir þörfum. Lausar stofur um húsið þar sem fólk getur sest niður, rætt verkefni sín og unnið að þeim, eitt sér eða með öðrum. Vinnustofur og örnámskeið fyrir einstaklinga og hópa. Dagskrá vökunnar

Fyrirlestur um bókmenntir Suður-Ameríku

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
26. mars 2015 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 201
Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Literature in the Rio de la Plata: Borges, Cortázar and being-in-the-world through the Fantastic“ og verður fluttur á ensku.
Alejandro Riberi, lektor í spænsku við Háskólann í Hull í Bretlandi, heldur fyrirlestur á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum um bókmenntir Rómönsku Ameríku. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Literature in the Rio de la Plata: Borges, Cortázar and being-in-the-world through the Fantastic“ og verður fluttur á ensku. Kynnir er Hólmfríður Garðarsdóttir, prófessor í spænsku. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Wikipediahittingur í Landsbókasafni

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
16. apríl 2015 - 17:00 til 19:00
Nánari staðsetning: 
3. hæð Landsbókasafns Íslands - Þjóðarbókhlöðunni
Háskóli Íslands
Í ár fagna Íslendingar því að 100 ár eru liðin frá því að Kristján 10. Danakonungur veitti íslenskum konum kosningarétt. Af því tilefni ætlar Félag Wikimedianotenda á Íslandi í samvinnu við Framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna að halda vikulega Wikipediahittinga í Landsbókasafni Íslands þar sem ætlunin er að þátttakendur bæti greinar sem fjalla með einum eða öðrum hætti um kvenréttindi. Umfjöllunin þarf þó ekki að vera bundin við íslensk viðfangsefni né heldur kvenréttindi, frjálst er að mæta og fjalla um hvað sem er.

Á staðnum verða leiðbeinendur sem munu aðstoða við tæknilega hlið þess að vinna í Wikipediu. Þar verður einnig aðgengilegt safn heimilda sem tengjast kvenréttindabaráttu, bæði á Íslandi og víðar. Allir eru velkomnir. Ekki þarf annan grunn en að kunna á lyklaborð og áhugann á því að taka þátt. Upplýsingarnar á Wikipediu eru sameign okkar allra og einnig verk okkar allra. Leiðbeinandi dagskrá fylgir hér:

                                       Tímabil         
Febrúar                 Landnám-1850              
Mars                     1850-1900             
Apríl                      1900-1950             
Maí                        1950-2000             
Júní                        2000-          

Fundirnir verða í hverri viku á fimmtudögum kl.  17:00-19:00 í tölvuverinu á 3. hæð Landsbókasafns Íslands (Þjóðarbókhlöðunni).

Listin að deyja

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
16. apríl 2015 - 17:00 til 19:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðasalur
Háskóli Íslands

Háskóli Íslands, Landspítali – háskólasjúkrahús, Krabbameinsfélagið, Þjóðkirkjan, Ný dögun, Læknafélag Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Lífið – samtök um líknarmeðferð og Hollvinasamtök líknarþjónustu standa fyrir ráðstefnunni Listin að deyja í Hátíðasal Háskóla Íslands fimmtudaginn 16. apríl 2015. Húsið verður opnað kl. 16.30 og kaffi og kleinur í boði áður en dagskrá hefst.

Allir velkomnir – ókeypis Aðgangur

Dagskrá:
17:00-17:05 Setning– Rósa Kristjánsdóttir, djákni og ritari Hollvinasamtaka líknarþjónustu

17:05-17:50 The importance of end of life experiences for living and dying– Peter Fenwick, prófessor emeritus í taugasálfræði

17:50-18:00 Fyrirspurnir

18:00-18:15 Ævispor– Sveinn Kristjánsson kynnir vefinn aevi.is

18:15-19:20 Pallborðsumræður
Andri Snær Magnason rithöfundur
Arndís Jónsdóttir aðstandandi
Jón Ásgeir Kalmsansson heimspekingur
Sólveig Birna Ólafsdóttir sálfræðinemi
Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur
Þórhildur Kristinsdóttir læknir

19:20-19:30 Samantekt og ráðstefnuslit

Fundarstjóri:Ævar Kjartansson

Málstofa - Tvöföld áskorun starfsgreinakennara í framhaldsskólum: Fagmennska í starfsgrein og kennslu

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
15. apríl 2015 - 16:20 til 17:05
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
K-206
Elsa Eiríksdóttir
Elsa Eiríksdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands: Tvöföld áskorun starfsgreinakennara í framhaldsskólum: Fagmennska í starfsgrein og kennslu

Ágrip: Í erindinu verður fjallað um niðurstöður úr viðtölum við fimm starfsgreinakennara í fimm ólíkum framhaldsskólum og jafnmörgum ólíkum starfsgreinum. Skimað verður eftir sameiginlegum þráðum er varða kennsluhætti og starfsþróun starfsmenntakennara. Sérstaklega verður fjallað um hvernig þessir starfsmenntakennarar leitast við að mæta þeirri áskorun að efla sig í starfi sem kennarar og fagmenn í eigin grein, og miðla jafnframt fagmennsku greinarinnar í kennarastarfinu. Rannsóknin er hluti af verkefninu Starfshættir í framhaldsskólum.

Upptökur frá fyrirlestrum í fyrri málstofuröðum um framhaldsskólarannsóknir eru aðgengilegar hér:  Þar verða jafnframt birtar upptökur af völdum fyrirlestrum úr þessari málstofuröð.

Kappakstursbíllinn TS15 afhjúpaður

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. apríl 2015 - 17:00
Staðsetning viðburðar: 
Háskóli Íslands

Verkfræðinemar við Háskóla Íslands í liðinu Team Spark afhjúpa Kappakstursbíllinni TS15 á Háskólatorgi fimmtudaginn 9. apríl nk. kl. 17. Nemarnir hafa unnið að smíði bílsins í allan vetur í samstarfi við nema við Listaháskóla Íslands og hyggjast fara með hann í alþjóðlegu kappaksturs- og hönnunarkeppnina Formula Student sem haldin verður á Silverstone-kappakstursbrautinni í Englandi í sumar.

Þess má geta að Team Spark hlaut verðlaun sem bestu nýliðarnir þegar liðið fór með bílinn TS14 á Silverstone í fyrra.

Boðið verður upp á léttar veitingar að afhjúpun lokinni.

Wikipediahittingur í Landsbókasafni

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. apríl 2015 - 17:00 til 19:00
Nánari staðsetning: 
3. hæð Landsbókasafns Íslands - Þjóðarbókhlöðunni
Háskóli Íslands
Í ár fagna Íslendingar því að 100 ár eru liðin frá því að Kristján 10. Danakonungur veitti íslenskum konum kosningarétt. Af því tilefni ætlar Félag Wikimedianotenda á Íslandi í samvinnu við Framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna að halda vikulega Wikipediahittinga í Landsbókasafni Íslands þar sem ætlunin er að þátttakendur bæti greinar sem fjalla með einum eða öðrum hætti um kvenréttindi. Umfjöllunin þarf þó ekki að vera bundin við íslensk viðfangsefni né heldur kvenréttindi, frjálst er að mæta og fjalla um hvað sem er.

Á staðnum verða leiðbeinendur sem munu aðstoða við tæknilega hlið þess að vinna í Wikipediu. Þar verður einnig aðgengilegt safn heimilda sem tengjast kvenréttindabaráttu, bæði á Íslandi og víðar. Allir eru velkomnir. Ekki þarf annan grunn en að kunna á lyklaborð og áhugann á því að taka þátt. Upplýsingarnar á Wikipediu eru sameign okkar allra og einnig verk okkar allra. Leiðbeinandi dagskrá fylgir hér:

                                       Tímabil         
Febrúar                 Landnám-1850              
Mars                     1850-1900             
Apríl                      1900-1950             
Maí                        1950-2000             
Júní                        2000-          

Fundirnir verða í hverri viku á fimmtudögum kl.  17:00-19:00 í tölvuverinu á 3. hæð Landsbókasafns Íslands (Þjóðarbókhlöðunni).

Kynningarfyrirlestur - Einyrkjabúskapur eða samvinna í rannsóknum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. apríl 2015 - 16:00 til 17:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Bratti
Háskóli Íslands

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands heldur kynningarfyrirlestur og nefnist fyrirlestur hans, Einyrkjabúskapur eða samvinna í rannsóknum.

Fyrirlesturinn fer fram í Bratta, Stakkahlíð fimmtudaginn 9. apríl og hefst hann kl. 16.00.
Boðið verður uppá léttar veitingar að fyrirlestri loknum. 

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson er fæddur árið 1954 á Akureyri en ólst upp í Mývatnssveit. Hann lauk unglingaprófi frá Skútustaðaskóla árið 1969, landsprófi miðskóla frá Laugaskóla 1971, stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1975, BA prófi í sagnfræði og uppeldisfræði 1979, kennaraprófi 1980 og cand.mag.-prófi í sagnfræði 1983, allt frá Háskóla Íslands, og doktorsprófi í menntunarfræðum frá Wisconsinháskóla í Madison árið 1991. Hann starfaði sem grunnskólakennari, framhaldsskólakennari, námsefnishöfundur, landvörður í þjóðgörðum og náttúruverndarsvæðum og deilarstjóri ökunáms hjá Umferðarráði áður en hann hóf störf hjá Háskólanum á Akureyri árið 1995 þar sem hann starfaði sem lektor, síðar dósent og prófessor um 19 ára skeið, síðustu árin að hluta til við Háskóla Íslands. Ingólfur var ráðinn sem prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands þann 1. júlí 2014 með áherslu á menntunarfræði framhaldsskóla.
Rannsóknir Ingólfs eru á margvíslegum sviðum innan menntunarfræða en ná einnig til umhverfisfræða og sagnfræði. Menntastefna og menntapólitík eru meðal umfangsmestu viðfangsefna Ingólfs, til dæmis þátttaka í fjölþjóðlega rannsóknarverkefninu Educational Governance og Social Integration/Exclusion. Hann er nú einnig þátttakandi og “team leader” í norræna öndvegissetringu Justice Through Education in the Nordic Countries sem NordForsk styrkir árin 2013-2018.  Ingólfur hefur einnig tekið þátt í ýmsum félagsstörfum, meðal annars um náttúruvernd, verið formaður SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi og setið í svæðisráði og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs.

Í erindinu rifjar Ingólfur upp ýmislegt um rannsóknarstörf sín og feril og fjallar um rannsóknapólitík. Erindið nefnist Einyrkjabúskapur eða samvinna í rannsóknum

Hann hefur birt milli 50 og 60 ritrýndar greinar og bókarkafla og bókina Karlmennska og jafnréttisuppeldi, og er einn af höfundum Heimabyggðarinnar, námsefnis í samfélagsgreinum sem gefið var út á níunda áratug síðustu aldar.
 
Kynningarfyrirlestur - Einyrkjabúskapur eða samvinna í rannsóknum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. apríl 2015 - 16:00 til 17:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Bratti
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson prófessor í menntunarfræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands heldur kynningarfyrirlestur um Einyrkjabúskap eða samvinnu í rannsóknum.

Fyrirlesturinn fer fram í Bratta, Stakkahlíð fimmtudaginn 9. apríl og hefst hann kl. 16.00.
Boðið verður uppá léttar veitingar að fyrirlestri loknum. 

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson er fæddur árið 1954 á Akureyri en ólst upp í Mývatnssveit. Hann lauk unglingaprófi frá Skútustaðaskóla árið 1969, landsprófi miðskóla frá Laugaskóla 1971, stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1975, BA prófi í sagnfræði og uppeldisfræði 1979, kennaraprófi 1980 og cand.mag.-prófi í sagnfræði 1983, allt frá Háskóla Íslands, og doktorsprófi í menntunarfræðum frá Wisconsinháskóla í Madison árið 1991. Hann starfaði sem grunnskólakennari, framhaldsskólakennari, námsefnishöfundur, landvörður í þjóðgörðum og náttúruverndarsvæðum og deilarstjóri ökunáms hjá Umferðarráði áður en hann hóf störf hjá Háskólanum á Akureyri árið 1995 þar sem hann starfaði sem lektor, síðar dósent og prófessor um 19 ára skeið, síðustu árin að hluta til við Háskóla Íslands. Ingólfur var ráðinn sem prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands þann 1. júlí 2014 með áherslu á menntunarfræði framhaldsskóla.
Rannsóknir Ingólfs eru á margvíslegum sviðum innan menntunarfræða en ná einnig til umhverfisfræða og sagnfræði. Menntastefna og menntapólitík eru meðal umfangsmestu viðfangsefna Ingólfs, til dæmis þátttaka í fjölþjóðlega rannsóknarverkefninu Educational Governance og Social Integration/Exclusion. Hann er nú einnig þátttakandi og “team leader” í norræna öndvegissetringu Justice Through Education in the Nordic Countries sem NordForsk styrkir árin 2013-2018.  Ingólfur hefur einnig tekið þátt í ýmsum félagsstörfum, meðal annars um náttúruvernd, verið formaður SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi og setið í svæðisráði og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs.

Í erindinu rifjar Ingólfur upp ýmislegt um rannsóknarstörf sín og feril og fjallar um rannsóknapólitík. Erindið nefnist Einyrkjabúskapur eða samvinna í rannsóknum

Hann hefur birt milli 50 og 60 ritrýndar greinar og bókarkafla og bókina Karlmennska og jafnréttisuppeldi, og er einn af höfundum Heimabyggðarinnar, námsefnis í samfélagsgreinum sem gefið var út á níunda áratug síðustu aldar.
 
Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. apríl 2015 - 13:00 til 17:00
Nánari staðsetning: 
Hvalasafnið á Húsavík
Háskóli Íslands

Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands verður haldinn í sal Hvalasafnsins á Húsavík fimmtudaginn 9. apríl nk. kl. 13 - 17.

Allir velkomnir. Gestir eru vinsamlega beðnir um að skrá sig fyrir 2. apríl hér.

Dagskrá:

13.00 Setning ársfundar.
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra.

13.10 Ávarp.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands.

13.20 Ávarp.
Kristján Þór Magnússon, bæjarstjóri Norðurþings.

13.30 ,,High lights of Whale Research in Skjálfandi Bay during the last years.“
Marianne Rasmussen, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Húsavík.

14.15 Kaffi

Innlegg framhaldsnema við rannsóknasetur HÍ.
14.45 ,,Þróun og staða ferðaþjónustu á Húsavík.“
Lilja B. Rögnvaldsdóttir, Rannsóknasetri HÍ á Húsavík.

15.05 ,,Tilraunaeldi á evrópska humrinum (Homarus gammarus) á Íslandi.“
Soffía Karen Magnúsdóttir, Rannsóknasetri HÍ á Suðurnesjum.

15.25 ,,Tourism in glacial landscapes: the impact of climate change.“
Johannes Welling, Rannsóknasetri HÍ á Höfn.

15.45 Kaffi

16.05 ,,Láréttar áskoranir í lóðréttu kerfi."                                                                                                           Héðinn Unnsteinsson, stefnumótunarsérfræðingur forsætisráðuneytinu.

16.35 ,,Setu(r)stofur. Hugtök, samstarf og verkaskipti í rannsóknastarfsemi í byggðum landsins.“
Óli Halldórsson, forstöðumaður Þekkingarnets Þingeyinga.

16.50 ,,Stefna Stofnunar rannsóknasetra 2015-2018.“
Sæunn Stefánsdóttir, forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands.

Fundarstjóri: Jörundur Svavarsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ og formaður ráðgefandi nefndar Stofnunar rannsóknasetra HÍ.

Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.

Gestir eru vinsamlega beðnir að skrá sig á á vef Stofnunar rannsóknasetra HÍ. Skráningu lýkur 2. apríl. 
 
Málstofa - Rannsókn á sögukennslu í íslenskum framhaldsskólum og fagþróun sögukennara.

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
8. apríl 2015 - 16:20 til 17:05
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
K-206
Súsanna Margrét Gestsdóttir
Súsanna Margrét Gestsdóttir, aðjunkt við Kennaradeild Háskóla Íslands og kennari við Fjölbrautaskólann við Ármúla: Rannsókn á sögukennslu í íslenskum framhaldsskólum og fagþróun sögukennara.

Ágrip: Sagt er frá doktorsrannsókn við Háskólann í Amsterdam sem hófst með þróun greiningartækis sem lýtur að sögulegri hugsun og hvernig kennarar geta stuðlað að því að nemendur tileinki sér hana. Þá hófst kortlagning sögukennslu í íslenskum framhaldsskólum sem nú stendur yfir en tæplega þrjátíu sögukennarar víða um land voru heimsóttir og nokkrar kennslustundir hjá hverjum og einum teknar upp. Frá þessu verður sagt í erindinu. Lokaþáttur rannsóknarinnar er tilviksrannsókn (Case Study) sem byggist á ákveðnu líkani (Lesson Study).

Upptökur frá fyrirlestrum í fyrri málstofuröðum um framhaldsskólarannsóknir eru aðgengilegar hér:  Þar verða jafnframt birtar upptökur af völdum fyrirlestrum úr þessari málstofuröð.

Wikipediahittingur í Landsbókasafni

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
28. maí 2015 - 17:00 til 19:00