Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Föstudagsseminar um söguleg efni: Vandamálin við Banks. Útgáfusaga og reynslusaga tveggja áratuga rannsókna

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
14. nóvember 2014 - 12:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 102
Háskóli Íslands

Nú er komið að ellefta föstudagsseminar Sagnfræði- og heimspekideildar um söguleg efni sem haldið verður hinn 14. nóvember, í stofu 102 Gimli (G102), kl. 12-13. Framsögumaður í þetta skiptið verður Anna Agnarsdóttir prófessor við Háskóla Íslands og nefnir hún efni sitt: 

Vandamálin við Banks. Útgáfusaga og reynslusaga tveggja áratuga rannsókna

Kjarni tölunar er eftirfarandi:

Hvernig er að gefa út stóra bók hjá erlendu forlagi? Vandamálin við að gefa út vandaða heimildaútgáfu, heimilda sem dreift er um allan heim. Hvernig fer maður að því að lesa erfiða skrift? Hvernig gengur að skilja bréf frá 18. öld?  Hvernig dagsetur maður ódagsett bréf og skýrslur?  Vandamál varðandi þýðingar: bréfin eru aðallega á ensku en einnig á latínu, frönsku, dönsku og íslensku. Vandamál varðandi þrettán viðauka, öflun myndefnis, öflun leyfa hjá skjalasöfnum. Samskipti við ritstjóra. Kostnaður o.s.frv. Af nógu er að taka. 

Vinnuheiti bókar er: Sir Joseph Banks: Iceland and the North Atlantic 1772-1820. Journals, Letters and Documents.

Við aðstandendur þessara föstudagsseminara hvetjum alla áhugasama um að taka þátt í málstofunni. Í framsögunni verða reifuð mörg vandamál sem vísindamenn út um allan heim glíma við þegar rannsókn þeirra beinist að einstaklingum frá fyrri tíð sem hafa víða ratað. 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012