Hvenær hefst þessi viðburður:
13. nóvember 2014 - 12:00 til 12:40
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
stofa 343

Málstofa Lífvísindaseturs verður haldin fimmtudaginn 13. nóvember kl. 12:00-12:40 í stofu 343 í Læknagarði.
Dr. Margrét Helga Ögmundsdóttir nýdoktor við Læknadeild Háskóla Íslands mun fjalla um rannsóknir sínar á Stjórnun sjálfsáts og virkni leysikorna í sortuæxlafrumum
Sjálfsát er leið frumu til þess að brjóta niður gölluð frumulíffæri og prótein. Þannig verða til ný byggingarefni fyrir áframhaldandi vöxt og viðgang frumunnar. Gallar í þessu kerfi hafa verið tengdir við aukna krabbameinsáhættu. Á hinn bóginn hefur verið sýnt að ferlið kemur æxlinu til góða þegar það hefur myndast. Margrét mun ræða samband sjálfsáts og krabbameins og stjórnun sjálfsáts í sortuæxlafrumum.
Nánar á vef Lífvísindaseturs: http://lifvisindi.hi.is/node/497