Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Kynningarfyrirlestur - Bryndís Benediktsdóttir - nýskipaður prófessor við Heilbrigðisvísindasvið

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. nóvember 2014 - 15:00 til 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 201
Þann 27. nóvember n.k. flytur Bryndís Benediktsdóttir, nýr prófessor við Læknadeild, erindi í tilefni að framgangi sínum.

Á Heilbrigðisvísindasviði hefur verið tekin upp sú nýbreytni að halda upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestri. Athafnirnar hefjast með stuttu yfirliti yfir helstu störf viðkomandi prófessors, en svo tekur hann sjálfur við og flytur erindi um störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum. Í lok athafnarinnar gefst svo tækifæri til þess að spjalla og gleðjast með hinum nýja prófessor.

Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á hinum nýja prófessor, störfum hans og áherslum, ekki síst til þess að auka tengsl og samstarf innan skólans, en einnig til þess að hefja prófessorsstarfið til vegsemdar. Sjá nánar á www.hi.is/hvs/kynningarfyrirlestrar

Þann 27. nóvember n.k. flytur Bryndís Benediktsdóttir, nýr prófessor við Læknadeild, erindi í tilefni að framgangi sínum.

Allir velkomnir


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012