
Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands verða veitt í 16. sinn fimmtudaginn 20. nóvember 2014.
Samkeppnin um hagnýtingarverðlaunin er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Tæknigarðs, Árnason|Faktor og Einkaleyfastofunnar sem leggja til verðlaunafé auk þátttöku í dómnefnd.
Leitað var eftir hagnýtanlegum hugmyndum frá starfsmönnum og nemendum Háskóla Íslands og tengdum stofnunum. Reynslan frá upphafi samkeppninnar sýnir að fleira má hagnýta en tæknilegar lausnir í iðnaði.
Veitt verða peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin en við val á hugmynd skoðar dómnefndin:
i) Leiðir við hagnýtingu og hversu fljótt unnt sé að hagnýta uppfinningu.
ii) Hvort hagnýting styðji við stefnu og starfsemi HÍ.
iii) Rannsóknavinnu að baki verkefnis/hugmyndar.
iv) Nýnæmi og frumleika.
v) Ávinning fyrir samfélagið.