
Málþing og kynning á Taleboblen verða haldin í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu laugardaginn 8. nóvember kl. 10:30-15:00.
Taleboblen er tæki til að þjálfa danskt talmál, einkum framburð, í tölvuumhverfi. Tækið er sniðið að þörfum nemenda í dönskunámi í Færeyjum, Grænlandi og Íslandi, og þróað í samvinnu fræðimanna við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur við Háskóla Íslands, Verslunarháskólann í Kaupmannahöfn, Fróðskaparsetur Færeyja, Málráð Grænlands og dönskukennara í löndunum þremur. Verkefnið er styrkt af Nordplus Sprog og Kultur áætluninni og Norræna menningarsjóðnum. Til þessa hefur tækið verið tilraunakennt, en verður nú gert aðgengilegt á netinu fyrir alla. Á málþinginu verður fjallað um kennslu dansks talmáls, máltækið kynnt og notkunarmöguleikar þess ræddir. Þá skýra dönskukennarar frá reynslu sinni af notkun Taleboblen. Dagskráin er öllum opin á meðan húsrúm leyfir.
Dagskrá:
10:30 Hvorfor Taleboble: Auður Hauksdóttir, prófessor við Háskóla Íslands.
11:00 Talebob – fra værksted til skolebord: Peter Juel Henrichsen, lektor við Verslunarháskólann í Kaupmannahöfn.
11:30 Erfaringer med brug af Taleboblen i undervisningen: Anna Margrét Bjarnadóttir, cand. mag., dönskukennari við Víðistaðaskóla og Margrét Karlsdóttir, m.paed., dönskukennari við Hvaleyrarskóla.
12:00 Hádegishlé.
13:00 Sprogindlæring og mundtlighed i folkeskolen i Island: Anna Margrét Bjarnadóttir, cand. mag., dönskukennari við Víðistaðaskóla.
13:30 Dansk som andetsprog i den grønlandske folkeskole - Udfordringer i danskundervisning med fokus på elevernes tilegnelse af dansk talesprog: Trine Pauck Hansen, námsstjóri í dönsku í Grænlandi.
14:00 Udfordringer i udtaleundervisningen i dansk som andetsprog på HF enkeltfag: Ulla Neumann, lektor við VUC Århus.
14:30 Fyrirspurnir og umræður.