Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Ný smáríki í Evrópu? Mögulegt sjálfstæði Katalóníu.

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
20. október 2014 - 13:30 til 15:30
Staðsetning viðburðar: 
Háskóli Íslands

Opin málstofa á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og DIPLOCAT

Ný smáríki í Evrópu? Mögulegt sjálfstæði Katalóníu

Katalónía er sjálfstjórnarhérað á Norðaustur Spáni með 7,5 milljónir íbúa. Nýlega hefur mikið verið fjallað um Katalóníu í fjölmiðlum vegna hugmynda stjórnvalda í héraðinu um að halda atkvæðagreiðslu um mögulegt sjálfstæði 9. nóvember næstkomandi. Í ljósi þess að spænsk stjórnvöld hafa nú bannað þessa atkvæðagreiðslu, hvað er þá framundan í sjálfstæðismálum Katalóníubúa? Þessi málstofa varpar ljósi á söguna á bak við afstöðu ráðamanna í Katalóníu og setur hana í samhengi við nýlega atburðarás. Auk þess verður sjónum beint að myndun nýrra smáríkja í Evrópu í pallborðsumræðum. Málstofan er haldin á vegum Alþjóðamálastofnunar í samvinnu við DIPLOCAT sem er samstarf opinberra aðila og einkageirans sem hefur það markmið að stuðla að uppbyggilegri umræðu og tengslamyndun Katalóníubúa við umheiminn.

Dagskrá málstofunnar má nálgast hér

Fundarstjóri: Alyson Bailes, aðjúnkt við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.

Nánari upplýsingar á vefsíðu Alþjóðamálastofnunar: www.ams.hi.is.
Alþjóðamálastofnun á Facebook: www.facebook.com/althjodamalastofnun  

Fundurinn fer fram á ensku og er öllum opinn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012